- Auglýsing -

Gísli Þorgeir er í úrvalsliði Evrópu

Gísli Þorgeir Kristjánsson Evrópumeistari með SC Magdeburg og landsliðsmaður. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Gísli Þorgeir Kristjánsson er í úrvalsliði Evrópu sem Handknattleikssamband Evrópu, EHF stóð fyrir vali á eftir að Evrópumótum félagsliða lauk. Gísli er eini Íslendingurinn í hópnum en einnig komu Ómar Ingi Magnússon, liðsfélagi Gísla hjá Evrópumeisturum SC Magdeburg, og Orri Freyr Þorkelsson, hornamaður Sporting Lissabon til greina í kjörinu sem almenningi stóð til boða að taka þátt í ásamt útvöldum hópi fjölmiðlamanna, handknattleiksmanna og þjálfara dagana 18. – 23. júní.


Auk Gísla Þorgeirs, sem valinn var mikilvægasti leikmaður úrslitahelgar Meistaradeildar Evrópu um miðjan mánuðinn, eru tveir samherjar hans í Evrópumeistaraliði SC Magdeburg í liðinu; vinstri skyttan Felix Claar, og Daninn Magnus Saugstrup sem valinn var bestur varnarmanna. Fjórir af átta leikmönnum úrvalsliðsins eru danskir landsliðsmenn.

Úrvalslið Evrópu fyrir tímabilið 2024 til 2025 er skipað eftirtöldum:

Vinstra horn: Emil Jakobsen (Danmörk, SG Flensburg-Handewitt).
Vinstri skytta: Felix Claar (Svíþjóð, SC Magdeburg).
Miðjumaður: Gísli Þorgeir Kristjánsson (Ísland, SC Magdeburg).
Hægri skytta: Mathias Gidsel (Danmörk, Füchse Berlin).
Hægra horn: Mario Sostaric (Króatía, OTP Bank – PICK Szeged).
Línumaður: Ludovic Fabregas (Frakkland, One Veszprém HC).
Markvörður: Emil Nielsen (Danmörk, Barcelona).
Varnarmaður: Magnus Saugstrup (Danmörk, SC Magdeburg).

Sá mikilvægasti?

Á föstudaginn upplýsir EHF um val sitt á mikilvægasta (MVP) leikmanni keppnistímabilsins í Evrópu og einnig þeim efnilegasta í karla- og kvennaflokki. Verður það gert um leið og dregið verður í riðla Meistaradeildar karla og kvenna fyrir næsta keppnistímabil.

Allt small hjá okkur – mikil vinna til að ná helginni

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -