Gísli Þorgeir Kristjánsson er í leikmannahópi SC Mageeburg sem mætir Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í dag. Leikmannahópar liðanna voru birtir í morgun eftir tæknifund og er Gísli Þorgeir á meðal 16 leikmanna sem Bennet Wiegert þjálfari teflir fram í undanúrslitaleiknum.
Leikurinn hefst klukkan 16 að íslenskum tíma í Lanxess Arena í Köln.
Gísli Þorgeir meiddist á vinstri öxl í viðureign við Lemgo fyrir hálfum mánuði. Síðan hefur hann ekkert leikið með liðinu og allar fregnir af honum verið í véfréttastíl. Hann kom með liðinu til Kölnar í fyrradag.
Wiegert hélt spilunum þétt að sér í gær en sagðist ekkki útiloka þátttöku Gísla Þorgeirs í leikjum helgarinnar en gaf að öðru leyti lítið út á hvort Hafnfirðingurinn kraftmikli tæki þátt eða ekki.
Ómar Ingi Magnússon verður vitanlega einnig í leikmannahópi Magdeburg í leiknum í dag en hann hefur leikið frábærlega með liðinu síðustu vikur.