Gísli Þorgeir Kristjánsson verður á meðal leikmanna þýska liðsins SC Magdeburg sem kemur til Kölnar á morgun, fimmtudag, til þess að taka þátt í síðustu leikjum Meistaradeildar Evrópu á laugardag og sunnudag í Lanxess-Arena í Kölnarborg í Þýskalandi.
„Allir leikmenn okkar verðskulda að koma með til Kölnar hvort sem þeir geta tekið þátt í leikjunum eða ekki,“ segir Bennet Wiegert þjálfari SC Magdeburg við þýska fjölmiðla.
„Gísli er á góðu góðu róli. Við vonumst til þess að hann komist hjá aðgerð,“ segir Wiegert ennfremur um leið og hann heldur spilunum þétt að sér að vanda.
Gísli Þorgeir fékk þungt högg á vinstri öxlina í þriðja síðasta leik Magdeburg í þýsku 1. deildinni gegn Lemgo fyrir 12 dögum. Hann var ekkert með í síðustu tveimur leikjum liðsins í deildinni.
„Það verður að koma í ljós hvernig honum líður en ég geri ekki ráð fyrir Gísla í mínum áætlunum fyrir helgina,“ segir Wigert ennfremur.
Magdeburg mætir Evrópumeisturum Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar á laugardaginn. Í hinni viðureigninni eigast við nýkrýndir Þýskalandsmeistarar Füchse Berlin og franska liðið Nantes.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma viðureign Füchse Berlin og Nantes.
Handbolti.is verður einnig í Lanxess Arena í Köln og fylgist með framvindunni.