- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66kvenna: FH tapaði í Úlfarsárdal – Valur vann á Ásvöllum

Leikmenn ungmennaliðs Fram eftir sigurinn á FH í dag. Mynd/Fram
- Auglýsing -

Lið Selfoss situr eitt í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í handknattleik þegar aðeins einum leik er ólokið í 5. umferð. FH-ingum mistókst í dag að komast upp að hlið Selfossliðsins. FH-ingar máttu bíta í það súra epli að fara án stiga úr heimsókn sinni til ungmennaliðs Fram í Úlfarsárdal. Eftir hörkuleik þá hafði Fram betur, 26:25, eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik 11:10.


FH er þar með ásamt Gróttu í öðru til þriðja sæti með átta stig, tveimur stigum á eftir Selfossi. Ungmennalið Vals laumaði sér upp í fjórða sætið með sigri á ungmennaliði Hauka, 32:19, á Ásvöllum í dag. Lengst af þessa leiks lék ekki vafi á um hvort liðið færi með sigur úr býtum.

Viðureign ungmennaliðs Fram og FH í Úlfarsárdal var lengst af jöfn og spennandi. Á kafla rétt fyrir miðjan síðari hálfleik tókst Fram að ná þriggja marka forskoti. Þann mun náði FH ekki að vinna niður að fullu áður en leiktíminn var á enda.
Markverðir beggja liða, Ingunn María Brynjarsdóttir hjá Fram, og Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir hjá FH, voru bestu leikmenn sinna liða.

Selfoss vann HK í Kórnum í gær.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deild kvenna.

Haukar U – Valur U 19:32 (8:18).
Mörk Hauka U.: Rósa Kristín Kemp 4, Hildur Sóley Káradóttir 4, Emilía Katrín Matthíasdóttir 3, Ester Amíra Ægisdóttir 4, Brynja Eik Steinsdóttir 2, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 1, Gunnhildur Pétursdóttir 1, Þóra Hrafnkelsdóttir 1.
Varin skot: Elísa Helga Sigurðardóttir 10.
Mörk Vals U.: Guðrún Hekla Traustadóttir 11, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 5, Ágústa Rún Jónasdóttir 4, Arna Karitas Eiríksdóttir 4, Sara Lind Fróðadóttir 3, Kristbjörg Erlingsdóttir 2, Ester Elísabet Guðbjartsdóttir 2, Hrafnhildur Markúsdóttir 1.
Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 5.

Fram U – FH 26:25 (11:10).
Mörk Fram U.: Sóldís Rós Ragnarsdóttir 9, Silja Katrín Gunnarsdóttir 7, Sara Rún Gísladóttir 3, Valgerður Arnalds 3, Elín Ása Bjarnadóttir 2, Þóra Lind Guðmundsdóttir 1, Ingibjörg Eva Baldvinsdóttir 1.
Varin skot: Ingunn María Brynjarsdóttir 18.
Mörk FH: Emilía Ósk Steinarsdóttir 8, Ena Car 7, Lara Zidek 5, Embla Jónsdóttir 2, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 1, Telma Medos 1, Karen Hrund Logadóttir 1.
Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 18.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deild kvenna.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -