- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66kvenna: Fimmti öruggi sigur Selfoss

Harpa Valey Gylfadóttir, Selfoss, skoraði níu mörk gegn FH í dag. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -

Efsta lið Grill 66-deildar kvenna í handknattleik, Selfoss, lagði HK með 11 marka mun í Kórnum í dag í 5. umferð deildarinnar, 32:21. Selfoss liðið var með forskot í leiknum frá upphafi til enda. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 19:11, gestaliðinu í vil.


Selfossliðið hefur nokkra yfirburði í Grill 66-deildinni. Það var m.a. undirstrikað að þessu sinni því nokkrir af sterkustu leikmönnum liðsins voru lítt áberandi en engu að síður var sigurinn öruggur.

Selfoss hefur þar með 10 stig að loknum fimm leikjum, er tveimur stigum á undan Gróttu sem vann Berserki í gær, og FH sem á leik á inni. FH sækir ungmennalið Fram heim á morgun. HK er með tvö stig eftir að hafa leikið fimm sinnum.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deild kvenna.

Mörk HK: Aníta Eik Jónsdóttir 7, Anna Valdís Garðarsdóttir 4, Katrín Hekla Magnúsdóttir 3, Aníta Björk Bárðardóttir 2, Inga Fanney Hauksdóttir 2, Stella Jónsdóttir 1, Sandra Rós Hjörvarsdóttir 1, Freyja Van de Putte 1.

Mörk Selfoss: Arna Kristín Einarsdóttir 8, Perla Ruth Albertsdóttir 5, Harpa Valey Gylfadóttir 4, Katla María Magnúsdóttir 4, Rakel Guðjónsdóttir 4, Tinna Sigurrós Traustadóttir 2, Adela Eyrún Jóhannsdóttir 2, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 1, Hulda Hrönn Bragadóttir 1, Katla Björg Ómarsdóttir 1.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -