- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Guðmundur Árni kominn heim til Gróttu eftir 9 ára fjarveru

Hulda Björk Halldórsdóttir formaður barna- og unglingaráðs, Guðmundur Árni Sigfússon yfirþjálfari og Harpa Guðfinnsdóttir í stjórn handknattleiksdeildar Gróttu. Ljósmynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -


Handknattleiksdeild Gróttu hefur ráðið Guðmund Árna Sigfússon, Mumma, sem yfirþjálfara yngri flokka, aðalþjálfara 3. flokks kvenna og aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna fyrir komandi tímabil. Með ráðningunni er verið að styrkja enn frekar faglegt starf deildarinnar, segir í tilkynningu frá Gróttu. Mummi mun sinna stöðu yfirþjálfara yngri flokka ásamt Andra Sigfússyni, sem hefur verið yfirþjálfari síðastliðin ár. Þeir munu vinna þétt saman að áframhaldandi uppbyggingu í yngri flokkum félagins.


Yngri flokka starf Gróttu hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum og iðkendum fjölgað mikið. Til að tryggja áframhaldandi gæði í þjálfun og uppeldi yngra iðkenda var ákveðið að bæta við starfsmanni og efla yfirþjálfarateymið enn frekar.

Guðmundur Árni mun starfa við hlið Júlíusar Þóris Stefánssonar, aðalþjálfara meistaraflokks kvenna, og stýra hinu unga og efnilega kvennaliði meistaraflokks Gróttu.  „Þar munu þeir halda áfram á þeirri uppbyggingavegferð sem Grótta hefur verið á undanfarin misseri með kvennaliðið og stýra því upp í deild þeirra bestu,“ segir ennfremur orðrétt í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.

Yfirþjálfarar Gróttu, Andri Sigfússon t.v. og Guðmundur Árni Sigfússon í gamla íþróttasalnum á Selttjarnaresi. Ljósmynd/Eyjólfur Garðarsson

Mumma þarf vart að kynna fyrir Gróttufólki. Hann er uppalinn á Nesinu, æfði með félaginu frá unga aldri, hóf þjálfun árið 1988 og er silfurmerkishafi Gróttu. Árið 2016 tók Mummi við sem yfirþjálfari og þjálfari hinna ýmsu flokka Fram og hefur starfað þar síðan við góðan orðstír. Hugurinn leitar þó alltaf heim og er mikil tilhlökkun hjá barna- og unglingaráði og stjórn meistaraflokka Gróttu handboltans fyrir komandi tímabilum.


„Ég hlakka mikið til komandi verkefna hjá Gróttu. Það er rífandi gangur í yngri flokka starfinu og mikil spenna að halda áfram þeirri vegferð sem það starf hefur verið á. Stelpurnar í meistaraflokknum eru hungraðar að komast aftur á meðal bestu liða og það verður gaman að vinna með Úlla að því markmið. Fyrst og síðast er ég ánægður að vera kominn aftur á Nesið,“ sagði Guðmundur Árni þegar samningur var í höfn.

Þjálfarar – helstu breytingar 2025

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -