- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Guðmundur Rúnar tekur við keflinu af Gunnari

Guðmundur Rúnar Guðmundsson verður aðalþjálfari karlaliðs Fjölnis á næsta keppnistímabili. Mynd/Þorgils G - Fjölnir handbolti
- Auglýsing -


Guðmundur Rúnar Guðmundsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks Fjölnis í handknattleik karla. Hann tekur við af Gunnari Steini Jónssyni sem stýrði liðinu í Olísdeild á síðustu leiktíð. Guðmundur Rúnar var Gunnari Steini innanhandar. Auk þess var Guðmundur Rúnar þjálfari karlaliðs Fjölnis frá 2020 til 2022.


Í tilkynningu frá Fjölni lýsir stjórn meistaraflokksráðs yfir sérstakri ánægju og telur ráðningu Guðmundar mikilvægt skref fyrir áframhaldandi starf meistaraflokks. Það er óhætt að segja að deildin hefði ekki getað óskað sér betri þjálfara til að taka við af Gunnari,” segir þar orðrétt.

„Við hlökkum til komandi keppnistímabils í Grill-66 deildinni og hvetjum stuðningsfólk Fjölnis til að fylkja sér á bak við liðið næsta tímabil og fylgjast með liðinu okkar með Guðmund Rúnar við stjórnvölinn,“ segir ennfremur í tilkynningu handknattleiksdeildar Fjölnis í dag.

Þjálfarar – helstu breytingar 2025

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -