- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Győri vann annað árið í röð og í sjöunda sinn á 12 árum

Leikmenn Győri fagna eftir að hafa tekið við sigurlaunum sínum. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Annað árið í röð vann ungverska meistaraliðið Győri Audi ETO Meistaradeild kvenna í handknattleik. Győri lagði danska liðið Odense, 29:27, í úrslitaleik í MVM Dome í Ungverjalandi síðdegis að viðstöddum 19.469 áhorfendum. Þetta er í sjöunda sinn sem Győri stendur uppi sem sigurvegari frá 2013.

Katrine Lunde hreppti þar með silfurverðlaun að þessu sinni en hún hefur sjö sinnum verið í sigurliði Meistaradeildar, þar af 2013 og 2014 með Győri. Lunde átti stórleik í dag en það nægði ekki.


Győri-liðið byrjaði mikið betur í leiknum. Segja má að öflugur upphafskafli hafi gefið tóninn. Leikmenn Odense, sem flestir hafa ekki áður verið í þeim sporum að leika til úrslita í Meistaradeildinni, náðu ekki áttum fyrir en á leikinn leið. Þá má segja að það hafi verið um seinan. Þrautreyndir leikmenn Győri gáfu lítið eftir.

Katrine Lunde markvörður Odense Håndbold. Ljósmynd/EPA


Staðan að loknum fyrri hálfleik var 20:15 Győri í vil.

Norska landsliðskonan Kari Brattset Dale, leikmaður Győri, var valin mikilvægasti leikmaður úrslitahelgarinnar.

Önnur norsk landsliðskona, Henny Reistad, leikmaður Esbjerg, var sú markahæsta í keppninni á leiktíðinni með 154 mörk.


Mörk Győri: Kari Brattset Dale 6, Estelle Veronique Nze Minko 6, Dione Housheer 6, Bruna Almeida de Paula 4, Kristina Jørgensen 2, Viktória Gyori-Lukács 2, Csenge Réka Fodor 2, Bo van Wetering 1.
Varin skot: Hatadou Sako 4, 31% – Sandra Toft 3, 14%.

Mörk Odense Håndbold: Mia Højlund 5, Louise Katharina Vinter Burgaard 4, Thale Rushfeldt Deila 4, Andrea Hansen 3, Lysa Tchaptchet Defo 2, Elma Halilcevic 2, Helena Elver Hagesø 2, Malin Larsen Aune 1, Helene Gigstad Fauske 1, Anna Blyme Grundtvig 1.
Varin skot: Katrine Lunde 12, 43% – Althea Reinhardt 3, 20%.

Fyrr í dag vann Esbjerg franska liðið Metz í leiknum um þriðja sætið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -