Hákon Daði Styrmisson lék við hvern sinn fingur í dag þegar Eintracht Hagen sótti topplið 2. deildar, Bergischer HC, heim í næst síðustu umferð deildarinnar. Hákon Daði, sem er nýlega byrjaður að leika aftur með Hagen eftir árs fjarveru vegna krossbandaslits, skoraði 10 mörk fyrir Hagen í 11 skotum. Þrjú markanna skoraði piltur úr vítaköstum.
Stórleikur Hákons Daða nægði ekki til þess að Hagen tækist að leggja toppliðið. Arnór Þór Gunnarsson og liðsmenn hans í Bergischer unnu með sjö marka mun, 34:27, og eru 11 stigum á undan Hüttenberg sem keppir við GWD Minden um annað sæti deildarinnar og sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili.
Tjörvi Týr Gíslason var ekki í leikmannahópi Bergischer HC í dag fremur en í leiknum á undan. Arnór Viðarsson skoraði eitt mark fyrir Bergischer HC.
Staðan í þýsku 2. deildinni fyrir lokaumferðina sem fram á laugardaginn: