- Auglýsing -
Íþróttafélagið Völsungs á Húsavík hefur ákveðið að hefja skipulagðar handboltaæfingar fyrir 5., 6. og 7. flokk drengja og stúlkna. Þetta kemur fram í tilkynningu HSÍ sem segir ákvörðina tekna í framhaldi af afar vel sóttu námskeiði fyrir börn sem HSÍ stóð fyrir í samvinnu við Völsung 29. og 30. ágúst.
Þar með mun þriðja aðildarfélag HSÍ á Norðurlandibætast við en fyrir eru Þór og KA á Akureyri.
Þjálfarar frá Þór og KA komu að námskeiðinu á Húsavík ásamt sjálfboðaliðum frá Völsungi.
Ekki kemur fram í tilkynningu hvenær æfingar nákvæmlega hefjast.
- Auglýsing -