- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Æsilegar lokamínútur

- Auglýsing -

Handboltahöllin á Handboltapassanum gerði upp 15. umferð Olísdeildar kvenna á mánudagskvöld og fór þar yfir æsispennandi lokamínútur í leik ÍBV og Fram, sem lauk með 32:31 sigri Eyjakvenna.

Rakel Dögg Bragadóttir, annar sérfræðinga Handboltahallarinnar, fór vandlega yfir lokamínúturnar þar sem allt var í járnum, eða allt þar til Sandra Erlingsdóttir átti glæsilega sendingu á Kristrúnu Ósk Hlynsdóttur sem skoraði sigurmarkið örfáum sekúndum fyrir leikslok.

„Sjáið Söndru, þessi sending sko,“ sagði þáttastjórnandinn Hörður Magnússon

„Frábær sending og þessi stelpa, Kristrún, hún valdi heldur betur rétta tímann. Hún er með tvö mörk í þessum leik og það eru mörk númer 31 og 32. Flautumark og stemningsmark. Þetta var vel gert hjá ÍBV,“ sagði Rakel Dögg.

Umræðu um æsilegar lokamínútur leiks ÍBV og Fram má sjá í myndskeiðinu hér fyrir ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -