- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Eins og lestarstjóri sem rauk áfram

- Auglýsing -

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld fór þáttastjórnandinn Hörður Magnússon yfir leik Vals og Hauka í 16. umferð Olísdeildar kvenna ásamt sérfræðingunum Vigni Stefánssyni og Ásbirni Friðrikssyni.

Töluverð skakkaföll eru hjá Val um þessar mundir þar sem Elísa Elíasdóttir, Mariam Eradze og Thea Imani Sturludóttir voru allar frá vegna meiðsla í leiknum, sem Valur vann að lokum 29:23.

Lovísa Thompson og Þórey Anna Ásgeirsdóttur stigu upp svo um munaði í leiknum þar sem Lovísa lék frábærlega í miðverðinum í vörn og skoraði þá fimm af fyrstu níu mörkum Vals.

„Hún var eins og lestarstjóri með Hafdísi og rauk áfram,“ sagði Vignir um frammistöðu Lovísu.

Hornamaður ein besta skytta deildarinnar

Vinstri hornamaðurinn Þórey Anna Ásgeirsdóttir leysti þá af í hægri skyttustöðunni og gerði það með miklum myndarbrag.

„Eftir að Thea datt út og hefur verið meira í hvíld eða í sínum meiðslum þá hafa þær verið með hægri handar leikmann þarna öfugu megin, Örnu Karítas og fleiri.


Þá hefur þessi taktur dottið aðeins niður eins og vill oft gerast. En að hafa Þóreyju þarna, sem hefur oft spilað skyttuna,“ hélt Vignir áfram og Ásbjörn skaut inn í: „Hún er ein besta hægri skytta deildarinnar.“

„Ekki nokkur spurning. Hún kemur alltaf á réttum tíma, getur skotið fyrir utan og getur spilað inn á línu. Svo er hún bara stemningsleikmaður,“ svaraði Vignir.

Umræðu um Val og þær lausnir sem Anton Rúnarsson þjálfari hefur fundið í fjarveru lykilmanna má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -