Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld fóru þáttastjórnandinn Hörður Magnússon og sérfræðingarnir Rakel Dögg Bragadóttir og Ásbjörn Friðriksson yfir þægilegan sigur ÍR á KA/Þór í 19. umferð Olísdeildar kvenna.
„Enn eitt skiptið sem hún er með tólf mörk,“ sagði Ásbjörn um landsliðskonuna Söru Dögg Hjaltadóttur sem er langmarkahæsti leikmaður Olísdeildarinnar á tímabilinu.
Landsliðskonunni Matthildi Lilju Jónsdóttur var einnig hrósað. „Matthildur er að stíga upp sóknarlega,“ sagði Ásbjörn.
„Hún átti mjög góðan leik og hefur verið einn af þessum leikmönnum sem er að vaxa. ÍR-liðið í heild sinni er að vaxa. Þær eru búnar að eiga frábært tímabil,“ sagði Rakel Dögg.
Geta alveg gert einhverja hluti
ÍR berst nú við Hauka um þriðja sæti deildarinnar og líst sérfræðingum Handboltahallarinnar vel á möguleika Breiðhyltinga í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn.
„Þær geta alveg gert einhverja hluti. Þær spila frábæra vörn og eru með góða leikmenn. Þær eru með þrjár landsliðskonur. Núna þurfa þær að halda áfram að bæta leik sinn fram að úrslitakeppni.
Svo fá þær lið sem er búið að hvíla ef þær fara í gegnum fyrstu umferð þannig að það eru alveg möguleikar þarna,“ sagði Ásbjörn.
Umræðuna um ÍR má sjá í heild sinni í myndskeiðinu hér að ofan.



