- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Skoraði frá eigin vallarhelmingi

- Auglýsing -

Vaka Líf Kristinsdóttir skoraði fallegt mark fyrir ÍR þegar liðið heimsótti KA/Þór í KA-heimilið á Akureyri í 12. umferð Olísdeildar kvenna á laugardag.

Leiknum lauk með 23:21 sigri KA/Þórs en Vaka Líf jafnaði metin í 6:6 um miðjan fyrri hálfleik.


Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Handboltapassanum og var markið, þar sem Vaka Líf kastar boltanum í markið frá eigin vallarhelmingi, tekið sérstaklega fyrir í Handboltahöllinni, vikulegum þætti sem er sýndur á mánudagskvöldum.

Markið má sjá hér:


Vaka Líf og samherjar í ÍR taka á móti ÍBV í Olísdeild kvenna klukkan 18 í kvöld í Skógarseli.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -