- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Haukar tóku Valsmenn í kennslund á Hlíðarenda

- Auglýsing -

Haukar gerðu sér lítið fyrir og unnu Valsmenn, 41:34, í Olísdeild karla í handknattleik á heimavelli Vals í kvöld. Þvert á vonir margra var viðureign liðanna aldrei spennandi. Til þess voru yfirburðir Hauka of miklir. Munurinn var sjö mörk í hálfleik, 22:15, og mátti litlu muna að forskotið væri átta mörk. Jens Sigurðarson markvörður Vals varði vítakast Andra Fannars Elíssonar rétt fyrir lok hálfleiksins.


Liðin eru jöfn að stigum, með 24 hvort, eftir viðureignina í tveimur efstu sætunum deildarinnar.

Það gerist sannarlega ekki oft að Valur fær á sig 41 mark á heimavelli.

Mestur varð munurinn 10 mörk, Haukum í hag, um miðjan síðari hálfleik, 33:23.

Grétar Ari Guðjónsson markvörður kom til Hauka eftir áramót eftir veru erlendis síðustu árin. Hann stóð lengst af í marki liðsins í kvöld gegn Val. Ljósmynd/Haukar

Munurinn á liðunum var ótrúlega mikill miðað við stöðu þeirra í deildinni. Valur var í raun í vandræðum frá byrjun til enda og Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari tók tvö leikhlé í fyrri hálfleik til þess að berja í brestina en fékk ekki við ráðið.

Ef marka má þessa viðureign eru Haukar sannarlega til alls líklegir á endaspretti Olísdeildarinnar. Þeir taka á móti ÍBV á sunnudaginn. Lærisveinar Ágústs Þórs eiga hins vegar fyrir höndum ferð í Mosfellsbæ sama dag. Þeir verða að vera fljótir að sleikja sárin eftir útreiðina á heimavelli í kvöld.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 7/2, Gunnar Róbertsson 7, Andri Finnsson 5, Bjarni í Selvindi 5, Daníel Montoro 4, Magnús Óli Magnússon 3, Logi Finnsson 1, Þorgils Jón Svölu Baldursson 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 5, 17,2% – Jens Sigurðarson 2/1, 10,5%.

Mörk Hauka: Skarphéðinn Ívar Einarsson 11, Össur Haraldsson 7, Andri Fannar Elísson 7/1, Freyr Aronsson 5, Birkir Snær Steinsson 3, Jón Karl Einarsson 2, Adam Haukur Baumruk 2, Ólafur Ægir Ólafsson 2, Hergeir Grímsson 1, Þráinn Orri Jónsson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 11, 29,7% – Magnús Gunnar Karlsson 3, 27,3%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -