Serbneska meistaraliðið RK Partizan hefur verið sektað um 15.000 evrur, jafnvirði nærri 2,2 milljóna kr, vegna óviðeigandi og afar hættulegrar hegðunar stuðningsmanna liðsins fyrir viðureignina við AEK Aþenu í átta liða úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik í lok mars. M.a. sprungu reyksprengjur á keppnisgólfinu um það leyti sem leikmenn liðanna voru kynntir til leiks. Fór svo að leikmenn AEK flúðu í búningsklefa sína. Var leiknum frestað og fór loks fram viku síðar fyrir luktum dyrum í Búlgaríu.
Dómstól EHF segir öryggismál á leiknum hafa verið óviðunandi. Auk sektar verður RK Partzan að leika næstu fimm heimaleiki sína í Evrópukeppni fyrir luktum dyrum. Tveir leikir eru skilorðsbundnir.
Til viðbótar verður RK Partizan að greiða 4.500 evru sekt vegna pólitískra auglýsingaborða sem voru í keppnissalnum. Þar með er ekki öll sagan sögð vegna þess að ofan á annað bætist kostnaður við síðari leik RK Partizan sem leikinn var fyrir luktum dyrum í Búlgaríu. RK Partizan skal bera allan kostnað af framkvæmd þess leiks.
Þykir ljóst að heildarkostnaðir RK Partizan vegna leiksins og uppákomunnar sé ekki undir 30.000 evrum, 4,5 miljónum kr.
Myndskeið: Reyksprengjur í Belgrad – leikmenn AEK yfirgáfu leikstaðinn
EHF skipar AEK og RK Partizan að mætast – leikið á hlutlausum velli