Frá og með morgundeginum mega allt að 200 áhorfendur koma á kappleiki í íþróttum, þar á meðal í handknattleik. Þetta kemur fram í nýrri reglugerð Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, sem tekur gildi á morgun. Svandis greindi frá helstu tilslökunum á samkomutakmörkunum eftir ríkisstjórnarfund skömmu fyrir hádegið.
„Fólk þarf þó að geta setið í sætum, upplýsingar þurfa að vera til staðar um hvern og einn, auk þess sem einn metri þarf að vera á milli óskyldra aðila. Einnig skal fólk nota grímur. Ef ekki er hægt að framfylgja þessu gildir 50 manna fjöldatakmörkunin,“ segir í frétt mbl.is.
Áfram verður tveggja metra reglan í gildi í almennum samskiptum.
Ný reglugerði ráðherra hefur ekki ennþá verið birt.