- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Heldur Guðmundur til Sviss?

- Auglýsing -

Handknattleiksþjálfarinn Guðmundur Þórður Guðmundsson er orðaður við þjálfarastarfið hjá karlaliði HC Kriens-Luzern í Sviss. Guðmundur var síðast þjálfari karlaliðs Fredericia HK í Danmörku en var látinn taka pokann sinn í lok september á síðasta ári.

Staðarblaðið Luzerner Zeitung greinir frá því að hann sé á blaði hjá Kriens-Luzern með það fyrir augum að taka við sem þjálfari karlaliðsins fyrir næsta tímabil.


Thomas Zimmermann er núverandi þjálfari liðsins en líkt og Handkastið vekur athygli á gæti honum verið gert að hætta störfum að loknu yfirstandandi tímabili vegna aukinna krafa um menntun þjálfara liða sem taka þátt í Evrópukeppnum, sem koma til með að taka gildi á næsta tímabili.

Auk Guðmundar er Andy Schmid, þjálfari svissneska karlalandsliðsins, á blaði hjá stjórnarmönnum Kriens-Luzern.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -