HK varð í kvöld deildarmeistari í Grill 66-deild kvenna í handknattleik og leikur þar með í Olísdeild kvenna á næsta keppnistímabili. HK-liðinu varð ekkert á í lokaumferðinni í kvöld og vann öruggan sigur á Fjölni, 31:20, í Kórnum í lokaumferð Grill 66-deildarinnar í kvöld. Tvö ár eru síðan HK féll úr Olísdeildinni.
Grótta, Víkingur og FH taka þátt í umspili Olísdeildar kvenna ásamt Stjörnunni en í umspilinu er eitt sæti í boði í Olísdeildinni á næsta keppnistímabili.
Grótta, sem vann Fram 2, 42:15, í Hertz-höllinni varð í öðru sæti Grill 66-deildar, tveimur stigum á eftir HK en liðin tvö hafa háð kapphlaup um efsta sætið frá fyrstu umferð í september.
Víkingur náði að leggja Aftureldingu, 25:23, í Myntkauphöllinni að Varmá og hreppa þriðja sætið. Víkingur mætir Gróttu í undanúrslitum umspilsins. FH lagði Val 2, 35:27, í N1-höllinni á Hlíðarenda. FH leikur við Stjörnuna í umspilinu. Ráðgert er að undanúrslit umspils Olísdeildar kvenna hefjist sunnudaginn að viku liðinni.
Lokastaðan í Grill 66-deild kvenna.
Valur 2 – FH 27:35 (14:18).
Mörk Vals 2: Laufey Helga Óskarsdóttir 6, Katla Margrét Óskarsdóttir 6, Guðrún Ásta Magnúsdóttir 4, Alba Mist Gunnarsdóttir 3, Erla Sif Leósdóttir 2, Eyrún Anna Arnarsdóttir 2, Embla Heiðarsdóttir 2, Hekla Hrund Andradóttir 1, Lena Líf Orradóttir 1.
Varin skot: Elísabet Millý Elíasardóttir 8.
Mörk FH: Thelma Dögg Einarsdóttir 12, Eva Guðrúnardóttir Long 7, Elísa Björt Ágústsdóttir 6, Hafdís Hera Arnþórsdóttir 4, Dagný Þorgilsdóttir 2, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 2, Ísabella Jórunn Mueller 1, Szonja Szöke 1.
Varin skot: Szonja Szöke 8.
Grótta – Fram 2 42:15 (21:9).
Mörk Gróttu: Arndís Áslaug Grímsdóttir 6, Edda Steingrímsdóttir 5, Ída Margrét Stefánsdóttir 5, Elísabet Ása Einarsdóttir 4, Edda Sigurðardóttir 3, Kristín Fríða Sc. Thorsteinsson 3, Lilja Hrund Stefánsdóttir 3, Katrín Arna Andradóttir 3, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 3, Svandís Birgisdóttir 3, Katrín S Scheving Thorsteinsson 2, Arna Katrín Viggósdóttir 1, Hrafnhildur Hekla Grímsdóttir 1.
Varin skot: Anna Karólína Ingadóttir 11, Andrea Gunnlaugsdóttir 4.
Mörk Fram 2: Aníta Rut Eggertsdóttir 7, Birna Ósk Styrmisdóttir 4, Brynja Sif Gísladóttir 2, Natalía Jóna Jensdóttir 1, Þóra Lind Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Andrea Líf Líndal 5, Freyja Sveinbjörnsdóttir 1.
HK – Fjölnir 31:20 (14:12).
Mörk HK: Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 6, Leandra Náttsól Salvamoser 5, Inga Fanney Hauksdóttir 4, Tinna Ósk Gunnarsdóttir 4, Jóhanna Lind Jónasdóttir 2, Sóley Ívarsdóttir 2, Þórhildur Braga Þórðardóttir 2, Katrín Hekla Magnúsdóttir 2, Margrét Guðmundsdóttir 1, Auður Katrín Jónasdóttir 1, Hekla Sóley Halldórsdóttir 1, Selma Sól Ómarsdóttir 1.
Varin skot: Danijela Sara B. Björnsdóttir 10, 40% – Tanja Glóey Þrastardóttir 3, 37,5%.
Mörk Fjölnis: Berglind Benediktsdóttir 6/6, Stefanía Ósk Engilbertsdóttir 6, Sara Kristín Pedersen 4, Guðrún Maryam Rayadh 1, Matthildur Lóa Baldursdóttir 1, Signý Harðardóttir 1.
Varin skot: Signý Pála Pálsdóttir 14, 31,8%.
Afturelding – Víkingur 23:25 (15:12).
Mörk Aftureldingar: Katrín Helga Davíðsdóttir 13, Drífa Garðarsdóttir 4, Susan Ines Barinas Gamboa 2, Þórdís Eva Elvarsdóttir 2, Arna Sól Orradóttir 1, Ásdís Halla Helgadóttir 1.
Varin skot: Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir 14.
Mörk Víkings: Valgerður Elín Snorradóttir 6, Auður Brynja Sölvadóttir 5, Ivana Jorna Dina Meincke 4, Mattý Rós Birgisdóttir 3, Andrea Ósk Þorkelsdóttir 2, Helga Lúðvíka Hallgrímsdóttir 2, Sara Björg Davíðsdóttir 2, Emilía Ína Burknadóttir 1.
Varin skot: Þyri Erla L. Sigurðardóttir 9.
Lokastaðan í Grill 66-deild kvenna.



