Hörður færðist upp fyrir Fjölni í lokastöðu Grill 66-deildar karla með sigri á ungmennunum í HBH, 35:31, í Vestmannaeyjum í dag. Ísfirðingar voru þremur mörkum yfir í hállfeik, 20:17.
Harðarmenn mæta þar með Gróttu í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla. Fjölnismenn leika við Olísdeildarlið Stjörnunnar. Gangi áætlarnir eftir verða fyrstu leikir umspilsins á Seltjarnarnesi og í Garðabæ á föstudaginn.
Einn leikur stendur þó út af borðinu í Grill 66-deild karla. Neðstu liðin, ÍH og HBH, mætast á 31. mars.
Staðan í Grill 66-deild karla.
HBH – Hörður 31:35 (17:20).
Mörk HBH: Hinrik Hugi Heiðarsson 8, Ívar Bessi Viðarsson 7, Heimir Halldór Sigurjónsson 4, Bogi Guðjónsson 3, Benóný Þór Benónýsson 2, Bergvin Haraldsson 2, Egill Oddgeir Stefánsson 2, Einar Bent Bjarnason 1, Kári Snær Hlynsson 1, Jóel Þór Andersen 1.
Varin skot: Helgi Þór Adolfsson 10, Gabríel Ari Davíðsson 4.
Mörk Harðar: Jose Esteves Lopes Neto 9, Kei Anegayama 7, Shuto Takenaka 5, Guilherme Carmignoli De Andrade 4, Axel Vilji Bragason 3, Jhonatan C. R. Dos Santos 2, Petr Hlavenka 2, Pétur Þór Jónsson 2, Edvards Toks 1.
Varin skot: Stefán Freyr Jónsson 11, Hermann Alexander Hákonarson 1.


