-Auglýsing-

HSÍ kynnir nýtt handboltaapp

- Auglýsing -

Fréttatilkynning frá HSÍ.

HSÍ kynnir nýtt handboltaapp – bylting í aðgengi að íslenskum handbolta

Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) mun á næstu 3-4 vikum gefa út nýtt og öflugt snjallforrit sem ætlað er að gjörbreyta aðgengi að upplýsingum um íslenskan handbolta. Appið er nú í prufukeyrslu hjá völdum notendum en stefnt er að opinberri útgáfu á næstu vikum.

Appið verður öllum aðgengilegt án kostnaðar og sameinar á einum stað helstu upplýsingar, tölfræði og fræðslu sem tengist íslenskum handknattleik.


Mótaskrá, úrslit og tölfræði

Í appinu verður að finna mótaskrá allra flokka í íslenskum handbolta – allt frá meistaraflokki niður í yngstu aldursflokka. Notendur geta fylgst með leikjum í rauntíma, skoðað nýjustu úrslit og nálgast ítarlega tölfræði um lið og leikmenn, þar á meðal markaskor og aðra helstu tölfræðiþætti.

Einnig verður hægt að nálgast highlights úr völdum leikjum og fylgjast með völdum leikjum í beinni útsendingu úr mismunandi deildum.

Fræðsla og þjálfun fyrir iðkendur

Fræðsluefni frá HSÍ verður einnig aðgengilegt í appinu. Þar má meðal annars finna styrktaræfingar fyrir þrjá mismunandi aldursflokka með skýringum í máli og myndum, auk almennrar fræðslu og fyrirlestra sem tengjast þjálfun og þróun íþróttarinnar.

Allt um HSÍ og aðildarfélögin

Appið mun einnig innihalda upplýsingar um starfsemi HSÍ, tengiliði innan aðildarfélaga og ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir iðkendur, foreldra og áhugafólk um handbolta.

Persónuleg upplifun fyrir notendur

Notendur geta valið sitt uppáhalds félag og jafnvel ákveðinn flokk innan þess félags til að fylgja sérstaklega. Með einum „smelli“ geta þeir þá séð næstu leiki, stöðu í deild og aðrar mikilvægar upplýsingar um sitt lið.

Öflug samskiptaleið fyrir félögin

Fyrir aðildarfélög HSÍ opnar appið nýja og öfluga leið til samskipta við sitt fólk. Félög geta, í gegnum HSÍ, sent tilkynningar beint til fylgjenda sinna í appinu, kynnt stóra leiki og viðburði eða komið upplýsingum til ákveðinna hópa áleiðis innan félagsins.

Til dæmis getur félag sent skilaboð til allra sem fylgja ákveðnum aldursflokki eða til allra sem fylgja félaginu. Þannig skapast ný og áhrifarík leið til að ná til stuðningsfólks, iðkenda og foreldra.


Handboltinn á einum stað

Í appinu verða einnig birtar fréttir frá helstu íslensku fjölmiðlum sem fjalla um handbolta, þannig að notendur geti fylgst með allri umfjöllun um íþróttina á einum stað.

Auk þess verður að finna tengingu við starfsfólk HSÍ innan appsins ef upp koma tæknileg vandamál eða ef notendur hafa spurningar.

Verkefnastjóri og hönnuður appsins er Jón Gunnlaugur Viggósson, íþróttastjóri HSÍ.


Markmiðið með appinu er að gera íslenskan handbolta aðgengilegri en nokkru sinni fyrr. Við erum að safna á einn stað leikjum, tölfræði, fræðslu og upplýsingum um félögin þannig að iðkendur, foreldrar og stuðningsfólk geti fylgst með öllu sem gerist í handboltanum.

Fyrir aðildarfélög HSÍ opnar appið alveg nýja samskiptaleið. Félög geta, í gegnum HSÍ, sent skilaboð beint til sinna stuðningsmanna, kynnt stóra leiki og viðburði og náð til ákveðinna hópa innan félagsins á einfaldan og skilvirkan hátt. Appið mun einnig skapa ný tækifæri fyrir aðildarfélög HSÍ til að efla tekjumöguleika sína. Í gegnum appið geta félög aukið sýnileika styrktaraðila og gert þeim kleift að eiga bein samskipti við stuðningsfólk félagsins, til dæmis með sértilboðum, kynningum og öðrum fríðindum fyrir áhangendur.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -