Frétttilkynning frá Handknattleikssambandi Íslands:
HSÍ hefur gert samninging við búningaframleiðandan Adidas til fjögurra ára. Þetta er stórt skref fyrir HSÍ, þar sem Adidas er eitt virtasta og þekktasta íþróttavörumerki heims og merkið þekkt fyrir gæði og framúrskarandi hönnun, sem hefur gert vörumerkið að eftirsóknarverðum samstarfsaðila íþróttafólks um heim allan.
Samstarfið við Adidas undirstrikar metnað HSÍ og viðurkenningu á þeirri stórsókn sem íslenskur handbolti hefur verið í undanfarin ár. Að fá Adidas sem samstarfsaðila er mikilvægt fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi, bæði sem gæðastimpill og áminning um alþjóðlegan stuðning við íslenskan handbolta.
Framundan eru stór verkefni fyrir HSÍ og landslið Íslands. A landslið kvenna heldur af landi brott á morgun og leikur tvo vináttuleiki gegn Sviss í undirbúningi fyrir EM 2024. Stelpurnar okkar munu ferðast til Innsbruck í Austurríki þar sem þær taka þátt í riðlakeppni Evrópumótsins og mæta sterkum liðum eins og Hollandi, Úkraínu og Þýskalandi. A landslið karla á líka spennandi verkefni framundan, þar sem þeir munu keppa á HM 2025, en mótið verður haldið í Króatíu, Danmörku og Noregi í janúar.
Í vináttulandsleikjunum gegn Sviss frumsýnir kvennalandsliðið nýju Adidas keppnistreyjuna og er sú frumsýning táknrænn áfangi fyrir endurnýjað samstarf HSÍ og Adidas.
Síðast unnu Adidas og HSÍ saman árið 1997 og því er ánægjulegt að fá þetta frábæra vörumerki aftur til liðs við íslenskan handbolta.
Samningurinn gildir í fjögur ár og tryggir landsliðunum aðgang að fyrsta flokks íþróttabúnaði og gefur von um frekari uppbyggingu og styrkingu handboltans á Íslandi á komandi árum.
„Það er mikið fagnaðarefni fyrir HSÍ þegar skrifað er undir samstarfssamninga við nýja bakhjarla. Flestir bakhjarlar HSÍ í dag hafa verið í bakvarðasveit okkar í yfir áratugi og er það von okkar hjá HSÍ að samstarfið við Adidas verði farsælt og ánægjulegt. Adidas er eitt sterkasta vörumerki heims og það er mikil ánægja að ná samningi við Adidas.“ segir Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ.