- Auglýsing -

Pólverjar voru kveðnir í kútinn – Ísland leikur um forsetabikarinn

Elmar Erlingsson lék varnarmenn pólska landsliðsins oft og tíðum grátt í dag. Ljósmynd/IHF
- Auglýsing -


Með frábærum varnarleik í síðari hálfleik þá braut íslenska landsliðið það pólska á bak aftur í viðureign liðanna á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða karla í handknattleik í Sosnowiec í Póllandi í dag. Lokatölur 38:32, eftir jafna stöðu í hálfleik, 18:18. Ísland leikur þar með um 17. sætið og forsetabikarinn á morgun gegn Serbíu. Flautað verður til leiks kl. 14.15.


Eftir hafa örlítið áttu undir högg að sækja framan af fyrri hálfleik þá fann íslenska liðið leiðina til þess að skáka pólska liðinu þegar á leið. Það var með breyttum varnarleik, 5/1 vörn, með Eyjapeyjan Ívar Bessa Viðarsson í fremsta hlutverk þegar á leið fyrri hálfleik.

Í síðari hálfleik gekk síðan allt upp. Að baki Ívari Bessa unnu félagar hans afar vel auk þess að Ísak Steinsson stóð fyrir sínu, ekki síst á þeim kafla sem pólska liðið var brotið á bak aftur.


Varnarleikurinn gekk svo vel að Pólverjar skoruðu aðeins átta mörk á fyrstu 22 mínútum síðari hálfleik og lentu mest sjö mörkum undir. Engu skipti þótt pólska liðið freistaði þess að tefla fram sjö sóknarmönnum. Liðið fann engin ráð gegn íslensku vörninni sem var afar öguð og fékk vart á sig brottrekstur.

Í framhaldinu gekk sóknarleikurinn eins og smurð vél. Staðan var orðinn afar traust þegar um miðjan síðari hálfleik, fimm marka forskot.

Á heildina litið frábær frammistaða hjá íslensku piltunum sem hafa svo sannarlega náð að snúa bökum saman. Nú þarf að endurtaka leikinn á morgun í síðasta leiknum.


Mörk Íslands: Elmar Erlingsson 11/3 (7 stoðsendingar), Össur Haraldsson 8, Skarphéðinn Ívar Einarsson 5, Birkir Snær Steinsson 3, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 3, Bjarki Jóhannsson 2 Hinrik Hugi Heiðarsson 2, Andri Fannar Elísson 1, Ívar Bessi Viðarsson 1, Sigurður Snær Sigurjónsson 1, Sigurður Páll Matthíasson 1.
Varin skot: Ísak Steinsson 7, 33% – Breki Hrafn Árnason 6, 25%.

Mörk Póllands: Piotr Mielczarski 7, Oskar Czertowicz 5, Patryk Wasiak 4, Mikolaj Rodak 3, Marcin Peplinski 3, Patryk Siekierka 2, Patryk Grzesik 2, Jakub Luksa 1, Jakub Pinda 1, Wojciech Kozlowski 1, Mateusz Martyn 1.
Varin skot: Jakub Wysocki 8, 22% – Adam Witkowski 1, 14%.

Ítarlegri tölfræði.

Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -