-Auglýsing-

Íslendingaliðið eltir Dortmund eins og skugginn

- Auglýsing -

Blomberg-Lippe heldur áfram að elta Dortmund eins og skugginn í þegar tvær umferðir eru eftir af þýsku 1. deildinni í handknattleik. Aðeins munar einu stigi á liðunum Dortmund í hag en liðin mætast í síðustu umferðinni eftir hálfan mánuð. Blomberg-Lippe vann öruggan sigur á Oldenburg á heimavelli í dag, 30:21, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16:12.


Íslensku landsliðskonurnar voru ekki iðnar við markaskorun í dag. Enginn þeirra skoraði. Díana Dögg Magnúsdóttir átti tvær stoðsendingar, var með 3 sköpuð færi, vann eitt vítakast og vann boltann einu sinni í vörninni.

Elín Rósa Magnúsdóttir skapaði þrjú marktækifæri og fiskaði eitt vítakast.

Andrea Jacobsen skoraði ekki úr eina markskoti sínu.

Tvær umferðir og úrslitakeppni

Eftir viku sækir Blomberg-Lippe lið SV Union Halle-Neustadt heim áður kemur að stórleiknum við Dortmund laugardaginn fyrir páska.

Að deildarkeppninni lokinni tekur við úrslitakeppni um þýska meistaratitilinn. Úrslitakeppnin var tekin upp í fyrra og þótti reynast vel.

Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -