- Auglýsing -
Díana Dögg Magnúsdóttir, landsliðskona í handknattleik, var markahæst hjá Blomberg-Lippe þegar þýska liðið mátti þola þriðja tap sitt í röð í B-riðli Evrópudeildarinnar í kvöld. Blomberg-Lippe fékk danska liðið Nykøbing í heimsókn og tapaði 22:29.
Blomberg-Lippe er á botninum án stiga eftir þrjár umferðir.
Díana Dögg skoraði sjö mörk og var markahæst í leiknum ásamt Maju Magnussen í liði Nykøbing.
Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði eitt mark fyrir Blomberg-Lippe en Andrea Jacobsen var ekki í leikmannahópnum að þessu sinni.
- Auglýsing -


