- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Íslenskir dómarar með í fimmta skipti

Jónas Elíasson og Anton Gylfi Pálsson dómarar er mættir til Köln. Ljósmynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -


Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma viðureign nýkrýndra Þýskalandsmeistara Füchse Berlín og franska liðsins Nantes í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla á morgun í Lanxess-Arena í Köln. Þetta verður í fjórða skiptið sem þeir félagar mæta saman til leiks með flautur sínar og spjöld til að dæma einhvern af leikjum úrslitahelgar Meistaradeildarinnar.  Anton Gylfi verður í eldlínunni í fimmta sinn. Hann dæmdi undanúrslitaleik Kielce og Barcelona í Köln 2013 með Hlyni Leifssyni. 


Þremur árum síðar var Anton Gylfi mættur til leiks á ný til Kölnar og þá með áðurnefndum Jónasi. Þeir dæmdu viðureign PSG og Kielce um 3. sætið á sunnudeginum. 

Tvö ár liðu og vorið 2018 voru þeir kallaðir til Kölnar til þess að dæma leik Vardar og Montpellier í undanúrslitum.  Anton Gylfi og Jónas dæmdu undanúrslitaleik Barcelona og Magdeburg fyrir tveimur árum. Sögulegan leik sem varð að tvíframlengja.

Stefán kom nokkrum sinnum við sögu

Áður en fyrirkomulagi keppninnar var breytt og tekin upp sérstök úrslitahelgi með fjórum síðustu leikjunum voru íslenskir dómarar valdir til þess að dæma leiki á lokaspretti Meistaradeildar Evrópu.

Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson dæmdu fyrri úrslitaleik Portland San Antonio frá Spáni og Montpellier í Meistaradeildinni vorið 2003. Þeir dæmdu einnig fyrri undanúrslitaleik Kiel og Badel Zagreb vorið 2000. 

Stefán dæmdi áður með Rögnvald Erlingssyni um árabil. Þeir dæmdu fyrri undanúrslitaleik Split og Kiel á vordögum 1998. Árið áður, 19. apríl 1997, dæmdu Stefán og Rögnvald síðari úrslitaleik milli Barcelona og Badel Zagreb í Meistaradeildinni að viðstöddum 11 þúsund áhorfendum í Zagreb. Barcelona vann leikinn, 30:23, eftir öruggan sigur á heimavelli, 31:22.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -