- Auglýsing -
Vinstri hornamaðurinn August Pedersen jafnaði í dag met norska karlalandsliðsins yfir flest mörk í einum leik þegar hann skoraði 19 mörk í 38:31 sigri Noregs á Hollandi á alþjóðlega mótinu Golden League í Kaupmannahöfn.
Mörgum er það minnisstætt þegar Kjetil Strand setti markamet þjóðar sinnar er hann skoraði 19 mörk í sigri Noregs á Íslandi á EM 2006, sem Pedersen hefur nú jafnað.
Í Golden League etja fjögur lið kappi; Danmörk, Bandaríkin, Noregur og Holland. Sigurður Jefferson Guarino tekur þátt í mótinu með Bandaríkjunum.
Úrslit í fyrstu tveimur umferðum Golden League:
Holland – Noregur 31:38 (16:23).
Danmörk – Bandaríkin 41:24 (19:11).
Holland – Bandaríkin 39:30 (19:15).
Danmörk – Noregur 39:30 (22:12).
- Auglýsing -



