Fyrirliði karlaliðs Víkings undanfarin ár, Jóhann Reynir Gunnlaugsson, hefur ákveðið að láta gott heita á handknattleiksvellinum eftir að hafa verið árum saman kjölfesta liðsins. Jóhann Reynir fékk blómvönd eftir síðasta heimaleik Víkings á keppnistímabilinu í síðustu viku auk þess sem sjá má að keppnistreyja hans með númerinu 11 á baki hangir á herðatré á mynd sem smellt var af Jóhanni við þetta tækifæri.
Eins og fyrr segir hefur Jóhann Reynir verið einn traustasti leikmaður Víkings og gengið með liði félagsins í gegnum súrt og sætt. Víkingur hefur ferðast á milli Olísdeildar og Grill 66-deildarinnar undanfarin ár. Síðast á laugardaginn innsiglaði Víkingur sér sæti í Olísdeild karla á næsta tímabili eftir tveggja ára veru í Grill 66-deildinni.
Lék m.a. í Danmörku
Auk Víkings lék Jóhann Reynir með HK 2013/2014. Að lokinni dvöl hjá HK endurnýjaði Jóhann Reynir kynni sín við Víking og lék í nokkur ár áður en hann fór til Danmerkur og bjó um tveggja ára skeið í Danmörku og lék með Lemvig-Thyborøn og Randers HH. Eftir heimkomu var Jóhann Reynir með Gróttu í þrjú tímabil uns hann gekk á ný til liðs við Víking 2021 og hefur verið hjá félaginu síðan. Jóhann Reynir hefur leikið nærri 300 leiki fyrir Víking.



