Ungur íslenskur handknattleiksmaður, Jón Ísak Halldórsson sem verið hefur hjá danska úrvalsdeildarliðinu TTH Holstebro undir stjórn Arnórs Atlasonar, hefur söðlað um og gengið til lið við Lemvig-Thyborøn Håndbold sem leikur í næst efstu deild. Jón Ísak lék með Lemvig í yngri aldursflokkum og segja má að hann sé kominn heim.
Jón Ísak leikur sem vinstri skytta og miðjumaður og var nokkrum sinnum í aðalliði TTH Holstebro á nýliðinni leiktíð en kom meira við sögu í ungmennaliði félagsins.
Jón Halldór var í vetur valinn til úrtaksæfinga með yngri landsliðum Íslands.
Faðir frá Akureyri
Faðir Jóns Ísaks, Halldór Arnarson, er frá Akureyri eftir því sem næst verður komist. Halldór er forstjóri Jeka Fish sem er eitt stærsta fyrirtæki í framleiðslu og sölu á fiski í Danmörku. Bækistöðvarnar eru í Lemvig á Jótlandi. Skammt er á milli Lemvig og Holstebro.
Móðir frá Vestmannaeyjum
Móðir Jóns Ísaks, Ingibjörg Bjarnadóttir, er frá Vestmanneyjum og gegnum móður sína tengist Jón Ísak mörgu fræknu íþróttafólki frá Vestmannaeyjum, m.a. Arnóri, Elliða Snæ, Ívari Bessa Viðarssonum, Örnu Sif Pálsdóttur, systkinunum Andra, Elmari og Söndru Erlingsbörnum, systkinunum Elísu, Margréti Láru og Bjarna Geir Viðarsbörnum, Tryggva Guðmundssyni, Erlingi Birgi Richardssyni og Richard Sæþóri Sigurðssyni svo aðeins nokkurra sé getið.
Karlar – helstu félagaskipti 2025