- Auglýsing -
Stúlkurnar í 5. flokki hjá KA/Þór unnu í morgun gullverðlaun á Norden Cup, óopinberu Norðurlandamóti yngri félagsliða. KA/Þór vann Önnereds HK frá Gautaborg, 21:17. Mótið fer fram í borginni. Framlengja varð úrslitaleikinn.
KA/Þórs-stúlkurnar unnu fimm af sex viðureignum sínum á mótinu sem staðið hefur yfir síðan á laugardaginn.
KA/Þór vann 21:19-sigur á norska liðinu Njård í 8-liða úrslitunum og svo svokallaðan endurkomusigur, 22:19, á Skanderborg frá Danmörku í undanúrslitunum.
Stelpurnar í KA/Þór 2 hafa einnig náð langt á mótinu og leika síðar í dag um sæti þrjú til fimm.
Fyrir tveimur árum vann stúlknalið Val og piltalið FH gullverðlaun á Norden cup:
Valur kemur líka heim með gull frá Norden Cup
- Auglýsing -


