Lið Vængja Júpíters er eitt nýju liðanna í Grill 66-deild karla, líkt og Hörður og Kría, sem einnig eru nýliðar, hafa sett skemmtilegan svip á deildarkeppnina, utan vallar sem innan.
Vængirnir taka upp alla leiki sína í Grill 66-deildinni og senda út á rás sinni á youtube. Þeir hafa húmor fyrir sjálfum sér sem er nauðsynlegur í bland við hæfilega alvöru.
Vængirnir mættu u-liði Vals á dögunum og einn þeirra, Jón Hjálmarsson, var óheppinn þegar hann gerði leifturárás á vörn Vals eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði sem barst til handbolta.is úr herbúðum Vængjanna. Einn Vængjanna vildi skrifa óhappið á nýja sokka en vafalaust hefur Jón ekki knýtt skóþveng sinn sem skildi. Víst er að kapp er best með forsjá.
Fjórir leikir verða í Grill 66-deild karla í dag og m.a sækja Jón og samherjar í Vængjum U-lið Hauka heim í Schenkerhöllina. Væntanlega munu Jón og félagar hafa í huga fyrir leikinn hina gullnu reglu Skarphéðins Njálssonar frá Bergþórshvoli að ganga aldrei til orrustu á vanhnýttum skóm.
Origohöllin: Valur U – Kría, kl. 15
Torfnes: Hörður – Fram U, kl. 16 – – bein útsending á youtuberás Viðburðastofu Vestfjarða.
Schenkerhöllin: Haukar U – Vængir Júpíters, kl. 18 – sýndur á Haukartv
Hleðsluhöllin: Selfoss U – Fjölnir, kl. 19.30 – sýndur á Selfosstv.