- Auglýsing -
Katla María Magnúsdóttir átti stórleik fyrir Holstebro Håndbold þegar liðið tapaði með minnsta mun, 28:27, fyrir Roskilde Håndbold í dönsku B-deildinni í dag. Holstebro var þegar búið að tryggja sér sigur í deildinni og spilar því í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Aðeins ein umferð er eftir af B-deildinni og er Holstebro á toppnum með 36 stig, fjórum stigum fyrir ofan Ajax København.
Katla María var markahæst allra í leiknum með átta mörk. Þar af skoraði hún úr fimm vítaköstum.
Selfyssingurinn er á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku og hefur gengið vel með liði Holstebro. Alvöru áskorun bíður hennar og liðsins á næsta tímabili í deild þeirra bestu.
- Auglýsing -


