Katla María Magnúsdóttir og stöllur í Holstebro Håndbold tryggðu sér í kvöld sæti í dönsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Holstbro vann Ejstrup/Hærvejen, 35:30, í Snede-Hallen á Jótlandi. Þar með hefur Holstebro sex stiga forskot á Ajax þegar tvær umferðir eru eftir í næstefstu deild.
Katla María, sem gekk til liðs við Holstebro Håndbold frá Selfossi á síðasta sumri, skoraði þrjú mörk í sigurleiknum í gærkvöld.
Holstebro Håndbold er gamalt veldi í dönskum kvennahandbolta, vann m.a. Evrópubikarkeppni kvenna 2013 með landsliðskonurnar Rut Arnfjörð Jónsdóttur og Þóreyju Rósu Stefánsdóttur í stórum hlutverkum. Lið félagsins hefur hins vegar mátt muna sinn fífil fegri á síðustu árum og leikið í næstefstu deild í kjölfar þess að karla- og kvennaliðum félagsins var skipt upp vegna fjárhagsvandræða.



