Katrín Ósk Ástþórsdóttir, leikmaður FH, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til næstu tveggja ára, til sumarsins 2028.
Katrín Ósk er tvítug og leikur í stöðu leikstjórnanda og vinstri skyttu. Hún hefur verið í stóru hlutverki hjá FH síðari hluta tímabilsins eftir að hafa glímt við meiðsli fyrri hluta þess.
Katrín Ósk hefur skorað 23 mörk í 14 leikjum í Grill 66 deildinni á tímabilinu. FH hafnaði í fjórða sæti deildarinnar og fer í fjögurra liða umspil um sæti í Olísdeildinni á næsta tímabili.
FH mætir Stjörnunni, sem hafnaði í sjöunda og næstneðsta sæti Olísdeildarinnar, í fyrstu umferð umspilsins. Grótta og Víkingur Reykjavík mætast í hinni viðureigninni. Umspilið hefst sunnudaginn 29. mars.



