Íslenskur doktorsnemi við Oxford-háskóla á Englandi, Sigurbjörn Markússon, varð á dögunum enskur meistari í handknattleik með liði Oxford. Frá þessu segir Vísir í dag og er ítarlega rætt við Sigurbjörn um kynni hans af handboltanum ytra og náminu en hann er á fjórða og síðasta ári doktorsnáms í lífefnafræði/formgerðarlíffræði.
Sigurbjörn og félagar í Oxford unnu London Great Dane, 36:25, í úrslitaleik um enska meistaratitilinn. Áður höfðu liðin unnið sinn leikinn hvort fyrr á leiktíðinni.
Oxford-liðið lét sér ekki nægja að vinna enska meistaratitilinn heldur vann liðið einnig breska ofurbikarinn fyrir viku.
Oxford lagði einnig London Great Dane í úrslitaleik ofubikarsins sem fram fór í Edinborg. Í þeirri keppni tóku þátt tvö ensk og tvö skosk lið.
Sigurbjörn lék upp yngri flokka KR og var í meistaraflokksliðinu sem vann sér sæti í Olísdeildinni vorið 2017 undir stjórn Ágústs Þór Jóhannsson. Skömmu síðar var meistaraflokkur KR lagður niður.
Að eigin sögn hefur Sigurbjörn verið afar aðsópsmikill, jafnt í vörn sem sókn Oxford-liðsins á keppnistímabilinu.
Eins og áður segir er ítarlega rætt við Sigurbjörn á Vísir:
Íslenskur doktorsnemi Englandsmeistari: Rannsakar prótín og skorar af línunni í Oxford