- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Landsliðskona gengur til liðs við Hauka

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir er komin í Haukabúninginn. Ljósmynd/Haukar
- Auglýsing -


Landsliðskonan Jóhanna Margrét Sigurðardóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við bikarmeistara Hauka. Jóhanna Margrét kemur til Hauka eftir ársveru hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad en þar áður verið með Önnereds og Skara HF í Svíþjóð frá 2022.


Jóhanna Margrét, sem verður 23 ára núna í júní leikur sem vinstri skytta og varð markahæsti leikmaður Olísdeildar kvenna áður en hún fór út til Svíþjóðar, þá sem leikmaður HK.

Jóhanna Margrét á að baki 22 landsleiki og hefur skorað í þeim 11 mörk en hún var hluti af liðinu sem lék á HM 2023 og EM 2024.

Gleðitíðindi að fá Jóhönnu

„Það eru sannkölluð gleðitíðindi að fá leikmann eins og Jóhönnu til liðs við Hauka og mun hún klárlega styrkja gott Haukalið til muna. Við munum því sjá Haukaliðið halda áfram þeirri uppbyggingu sem verið hefur á liðinu síðustu ár og halda áfram að berjast um alla þá titla sem í boði eru.
Við bjóðum Jóhönnu velkomna á Ásvelli og hlökkum til að sjá hana kæta áhorfendur í Haukabúningnum eftir sumarið,“ segir í tilkynningu Hauka.

Þrjár komnar – tvær farnar

Jóhanna Margrét er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hauka á síðustu vikum. Hinar eru Aníta Eik Jónsdóttir frá HK og Embla Steinsdórsdóttir frá Stjörnunni.

Elín Klara Þorkelsdóttir kveður Hauka og gengur til liðs við IK Sävehof í sumar auk þess sem Margrét Einarsdóttir markvörður hefur ákveðið að leika með Stjörnunni á næstu leiktíð.

Konur – helstu félagaskipti 2025

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -