- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Leiðir HSÍ og Rapyd skilja

Vörumerki Rapyd mun ekki verða á búningum íslensku landsliðanna frá og með 1. september. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Fréttatilkynning frá HSÍ og Rapyd

Rapyd og forverar þess hafa styrkt íslenskan handknattleik frá árinu 1984 og verið helsti fjárhagslegur bakhjarl Handknattleikssambands Íslands í rúma fjóra áratugi. Að undanförnu hefur áhersla verið lögð á að efla afreksstarf í handknattleik með því að styrkja ungt og efnilegt handknattleiksfólk með beinum fjárstuðningi, svokallaðri „stoðsendingu Rapyd.“ Verkefnið skilaði góðum árangri og hefur verið mikilvægt fyrir uppbyggingu landsliða Íslands í handknattleik.

Nú er komið að leikslokum. Rapyd og HSÍ hafa komist að samkomulagi um að samstarfi félaganna ljúki 1. september næstkomandi.


„Við erum afar stolt af áratuga löngum stuðningi okkar við handknattleikssambandið. Íslenskur handknattleikur hefur náð eftirtektarverðum árangri og borið hróður Íslands um allan heim. Nú er komið að leiðarlokum hjá okkur og við óskum íslenskum handknattleik velfarnaðar. Við hlökkum til að fylgjast með okkar frábæra handknattleiksfólki í framtíðinni, nú á hliðarlínunni,“ segir Garðar Stefánsson forstjóri Rapyd á Íslandi.

„Samstarf HSÍ við Rapyd hefur verið handknattleikssambandinu afar mikilvægt. Stuðningur Rapyd hefur skipt sköpum fyrir rekstur landsliðanna og verkefni þeirra á undanförnum árum. Við erum þakklát fyrir þann tíma sem Rapyd hefur verið hluti af þeim mikla árangri sem landsliðin okkar hafa náð og þökkum þeim innilega fyrir stuðninginn,“ segir Jón Halldórsson formaður HSÍ.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -