- Auglýsing -
Leikjum á Íslandsmótinu í handknattleik sem fram áttu að fara í kvöld hefur verið frestað. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, sendi frá sér fyrir stundu.
Til stóð að einn leikur færi fram í Olísdeild karla og fjórir í Grill 66-deild kvenna. Ekkert verður af þeim að sinni.
Einnig hefur öllum handboltaleikjum hér á landi verið frestað ótímabundið, segir í tilkynningu HSÍ. Framhald mótahalds verður ákveðið á komandi vikum þegar skýrist betur með framhald aðgerða yfirvalda, en þau lögðu í dag bann við öllum íþróttaæfingum og keppni næstu þrjár vikur.
- Auglýsing -