Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handknattleik meiddist í leik með Volda í norsku 1. deildinni í gær. Útlit er fyrir að hún leiki ekki fleiri leiki á keppnistímabilinu með liðinu. Þar með verður hún ekki með íslenska landsliðinu í síðustu tveimur leikjum undankeppni EM, gegn Færeyingum í Þórshöfn 8. apríl og í heimaleiknum við Portúgal fjórum dögum síðar.
Eftir því sem handbolti.is kemst næst slitnaði liðband í ökkla Dönu Bjargar snemma leiks Volda og Glassverket í gær. Kom hún skiljanlega ekkert meira við sögu í viðureigninni sem Volda vann örugglega, 33:23. Dana Björg hafði skorað þrjú mörk þegar hún meiddist.
Útlit er fyrir að Dana Björg hafi um leið lokið keppni með Volda en hún samdi í byrjun febrúar um að ganga til liðs við úrvalsdeildarliðið Larvik frá og með næsta keppnistímabili.




