- Auglýsing -
Leonharð Þorgeir Harðarson hefur gert nýjan þriggja ára samning við handknatteiksdeild FH. Þetta kemur fram í tilkynningu handknattleiksdeildar FH í morgun.
Leonharð Þorgeir, sem er 27 ára gamall, gekk til liðs við FH frá Haukum í upphafi árs 2019 og hefur síðan þá verið einn af lykilleikmönnum liðsins. Hann hefur skorað 30 mörk í 17 leikjum í Olísdeildinni á þessari leiktíð. Leonharð Þorgeir getur jafnt leikið sem hægri skytta og í hægra horni.
FH er í efsta sæti deildinnar með 33 stig eftir 18 leiki, þremur stigum á undan Val. FH sækir ÍBV heim föstudaginn 22. mars í 19. umferð Olísdeildar.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
- Auglýsing -