- Auglýsing -
- Auglýsing -

Lokahóf á Selfossi: Katla María og Einar best – myndir

Efri röð f.v.: Þórir Ólafsson meistaraflokks karla, Sölvi Svavarsson, Jón Þórarinn Þorsteinsson, Einar Sverrisson, Sverrir Pálsson, Jón Birgir Guðmundsson, Hans Jörgen Ólafsson, Eyþór Lárusson þjálfari meistaraflokks kvenna. Fremri röð f.v.: Elinborg Katla Þorbjörnsdóttir, Katla Björg Ómarsdóttir, Katla María Magnúsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir, Jósef Geir Guðmundsson. Mynd: Selfoss handbolti / ÁÞG
- Auglýsing -

Lokahóf handknattleiksdeildar Selfoss fór fram með pompi og prakt um síðastliðna helgi á Hótel Selfoss og Miðbar.

Katla María Magnúsdóttir og Einar Sverrisson, bestu leikmenn meistaraflokksliða Selfoss. Mynd: Selfoss handbolti / ÁÞG

Katla María Magnúsdóttir var valin besti leikmaður meistaraflokks kvenna og Einar Sverrisson var valinn besti leikmaður meistaraflokks karla. Þá var Hans Jörgen Ólafsson valinn besti leikmaður U-liðsins auk þess að vera markakóngur liðsins.

Unglingalandsliðsmaðurinn Hans Jörgen Ólafsson var valinn besti leikmaður U-liðsins auk þess sem han varð markakóngur. Mynd: Selfoss handbolti / ÁÞG

Katla María sópaði að sér verðlaunum, en auk þess að vera leikmaður ársins var hún einnig markadrottning og sóknarmaður ársins. Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir var valin varnarmaður ársins og Hulda Hrönn Bragadóttir var valin efnilegasti leikmaðurinn. Þá fékk Katla Björg Ómarsdóttir baráttubikarinn.

Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir, Katla Björg Ómarsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir og Katla María Magnúsdóttir. Mynd: Selfoss handbolti / ÁÞG

Einar Sverrisson sópaði einnig að sér verðlaunum en hann varð einnig markakóngur og var valinn sóknarmaður ársins. Sverrir Pálsson var valinn varnarmaður ársins og Jón Þórarinn Þorsteinsson var valinn efnilegasti leikmaður meistaraflokks karla. Sölvi Svavarsson fékk baráttubikarinn karlamegin.

Sölvi Svavarsson, Einar Sverrisson, Sverrir Pálsson og Jón Þórarinn Þorsteinsson. Mynd: Selfoss handbolti / ÁÞG
Jón Birgir Guðmundsson, Jóndi, og Jósef Geir Guðmundsson handhafi Björns Blöndal bikarsins. Mynd: Selfoss handbolti / ÁÞG

Félagi ársins var útnefndur Jón Birgir Guðmundsson. Ekki þarf að fjölyrða um öll þau störf sem Jóndi hefur innt af hendi fyrir félagið. Stjórnarmaður til 8 ára, sjúkraþjálfari í 15 ár, sjálfboðaliði o.s.frv. Jóndi er að öðrum ólöstuðum einstaklega vel að þessu kominn.

Ketill Heiðar Hauksson og Hannes Höskuldsson. Mynd: Selfoss handbolti / ÁÞG

Að lokum voru veittar viðurkenningar fyrir leikjafjölda. Hannes Höskuldsson fékk viðurkenningu fyrir 100 leiki spilaða og Ketill Heiðar Hauksson fékk viðurkenningu fyrir 100 leiki sem sjúkraþjálfari.

Efri röð f.v.: Þórir Ólafsson meistaraflokks karla, Sölvi Svavarsson, Jón Þórarinn Þorsteinsson, Einar Sverrisson, Sverrir Pálsson, Jón Birgir Guðmundsson, Hans Jörgen Ólafsson, Eyþór Lárusson þjálfari meistaraflokks kvenna.
Fremri röð f.v.: Elinborg Katla Þorbjörnsdóttir, Katla Björg Ómarsdóttir, Katla María Magnúsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir, Jósef Geir Guðmundsson. Mynd: Selfoss handbolti / ÁÞG

Gleðin skein úr hverju andliti allt kvöldið. Boðið var upp á mat frá Riverside og Tommi Steindórs sá um að halda dagskrá, segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Selfoss.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -