- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Lokahóf: Hannes og Perla Ruth best – Þorsteinn, Eva og Árni heiðruð

Verðlauna- og viðurkenninghafar í lokahófi handknattleiksdeildar Selfoss. Ljósmynd/Sigurður Ástgeirsson
- Auglýsing -


Líf og fjör var þegar handknattleiksdeild Selfoss gerði upp liðið keppnistímabil í Hvíta Húsinu á dögunum. Dagskráin var með hefðbundnu sniði undir stjórn Ingvars Arnar Ákasonar. Verðlaun og viðurkenningar voru veitt, glæsilegt steikarhlaðborð frá Hvíta Húsinu, skemmtidagskrá meistaraflokks karla, happdrætti, uppboð og kvöldinu var svo lokað með trúbadornum Hlyni Héðins.


Perla Ruth Albertsdóttir og Hannes Höskuldsson voru valin bestu leikmenn meistaraflokksliða Selfoss á nýliðinni leiktíð. Kvennalið Selfoss varð í fjórða sæti í Olísdeildinni og karlaliðið vann sér sæti í Olísdeildinni á nýjan leik eftir eins árs veru í Grill 66-deildinni.

F.v.: Einar Sindri Ólafsson, Þorsteinn Þór Eyvindsson, Eva Hrönn Jónsdóttir og Þórir Haraldsson. Ljósmynd/Sigurður Ástgeirsson

Eva og Þorsteinn hlutu Hildarbikarinn

Auk hefðbundinna viðurkenninga til leikmanna voru hjónin Eva Hrönn Jónsdóttir og Þorsteinn Þór Eyvindsson útnefnd félagi ársins og fengu Hildarbikarinn til varðveislu næsta árið. Þau hafa unnið baki brotnu á svo til öllum heimaleikjum meistaraflokks kvenna og karla, mætt á öll yngri flokkamót og ýmsar fjáraflanir. Þá er sjaldgæft að komast á útileik hjá Selfossliði þar sem þau eru ekki mætt.

Helgi Haraldsson formaður Ungmennafélags Selfoss t.h. sæmir Árna Þór Grétarsson silfurmerki Ungmennafélags Selfoss. Ljósmynd/Sigurður Ástgeirsson

Árni Þór sæmdur silfurmerki

Árni Þór Grétarsson var sæmdur silfurmerki Ungmennafélags Selfoss. Árni Þór hefur verið vægt til orða tekið vel virkur í starfi handknattleiksdeildarinnar um árabil. Farið yfir sjó og heiðar með handboltafólki á ýmsum aldri, starfað á heimaleikjum svo fátt eitt sé nefnt.

Verðlaunahafar lokahófs handknattleiksdeildar Selfoss 2025:

Eyþór Lárusson þjálfari kvennaliðs Selfoss með Perlu Ruth Albertsdóttur á myndinni til vinstri. Á hinni myndinni eru Atli Kristinsson aðstoðarþjálfari karlaliðs Selfoss, Hannes Höskuldsson og Carlos Martin þjálfari karlaliðs Selfoss. Ljósmynd/Sigurður Ástgeirsson

U-lið:
Markakóngur – Hákon Garri Gestsson, 98 mörk.
Leikmaður ársins – Skarphéðinn Steinn Sveinsson.

Meistaraflokkur kvenna:
Markadrottning – Perla Ruth Albertsdóttir, 118 mörk.
Sóknarmaður ársins – Harpa Valey Gylfadóttir.
Varnarmaður ársins – Hulda Dís Þrastardóttir.
Efnilegasti leikmaðurinn – Ágústa Tanja Jóhannsdóttir.
Baráttubikarinn – Katla María Magnúsdóttir.
Leikmaður ársins – Perla Ruth Albertsdóttir.

Meistaraflokkur karla:
Markakóngur – Hannes Höskuldsson, 135 mörk.
Sóknarmaður ársins – Sölvi Svavarsson.
Varnarmaður ársins – Valdimar Örn Ingvarsson.
Efnilegasti leikmaðurinn – Jónas Karl Gunnlaugsson.
Baráttubikarinn – Tryggvi Sigurberg Traustason.
Leikmaður ársins – Hannes Höskuldsson.

Leikjaviðurkenningar:
Hulda Dís Þrastardóttir, 200 leikir.
Guðjón Baldur Ómarsson, 200 leikir.
Elvar Elí Hallgrímsson, 100 leikir.

Fleiri lokahóf:

Lokahóf: Kátt á hjalla í Úlfarsárdal

Lokahóf: Stjörnufólk kom saman og gerði upp tímabilið

Lokahóf: Hafdís og Jóhann leikmenn tímabilsins

Lokahóf: Baldur Fritz og Katrín Tinna best hjá ÍR

Lokahóf: Jóhannes Berg og Telma best hjá FH

Lokahóf: Gróttufólk kom saman gerði upp veturinn

Lokahóf: Lonac og Dagur Árni best hjá KA/Þór og KA

Lokahóf: Haraldur og Sólveig best – Björgvin Páll heiðraður

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -