Lokahóf handknattleiksdeildar Fram fór fram á laugardaginn og réði kátína sannarlega ríkjum eftir sigursælt tímabil karlaliðs félagsins sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Þetta er fyrsta sinn sem karlaliðið verður tvöfaldur meistari. Kvennalið Fram varð í öðru sæti í Olísdeildinni og fékk silfurverðlaun í Poweradebikarnum.
Verðlaunahafar tímabilsins
Meistaraflokkur karla:
Efnilegasti leikmaðurinn: Eiður Rafn Valsson.
Besti leikmaðurinn: Dagur Fannar Möller.
Mikilvægasti leikmaðurinn: Reynir Þór Stefánsson.
Meistaraflokkur kvenna:
Efnilegasti leikmaðurinn: Valgerður Arnalds.
Besti leikmaðurinn: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín.
Mikilvægustu leikmennirnir: Steinunn Björnsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Fram U – kvenna:
Haukur í horni: Elín Ása Bjarnadóttir.
Besti leikmaðurinn: Sóldís Rós Ragnarsdóttir.
Fram U – karla:
Haukur í horni: Garpur Gylfason.
Besti leikmaðurinn: Arnþór Sævarsson.
Sérstök viðurkenning:
200 leikir fyrir Fram: Arnar Snær Magnússon.
Veglegur stuðningur
Að auki afhenti Róbert F. Michelsen handknattleiksdeild Fram veglega ávísun að upphæð 1.000.000 króna fyrir frábært gengi í vetur. Gísli Freyr Valdórsson, formaður deildarinnar, tók við styrknum.
Við þökkum öllum leikmönnum, þjálfurum, stuðningsmönnum og sjálfboðaliðum fyrir ómetanlegt framlag í vetur, segir í tilkynningu Fram.
Lokahóf: Stjörnufólk kom saman og gerði upp tímabilið
Lokahóf: Hafdís og Jóhann leikmenn tímabilsins
Lokahóf: Baldur Fritz og Katrín Tinna best hjá ÍR
Lokahóf: Jóhannes Berg og Telma best hjá FH
Lokahóf: Gróttufólk kom saman gerði upp veturinn
Lokahóf: Lonac og Dagur Árni best hjá KA/Þór og KA
Lokahóf: Haraldur og Sólveig best – Björgvin Páll heiðraður