Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson mætir til leiks á ný með danska úrvalsdeildarliðinu Fredericia HK að loknu sumarleyfi. Engar breytingar verður á högum hans í þeim efnum eftir því sem fram kemur í samtali við Arnór á mbl.is í dag. Þriggja ára samningur Arnórs við danska liðið, sem Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar, tók gildi fyrir ári.
Arnór hóf síðustu leiktíð með Fredericia HK en náði sér ekki á flug og var síðla árs lánaður til þýska 2. deildarliðsins Bergischer HC hvar hann lék út keppnistímabilið sem lauk fyrir viku.
Bergischer HC vann 2. deildina undir stjórn Arnórs Þór Gunnarssonar og Markus Pütz.
„Tíminn hjá Bergischer var frábær,“ sagði Arnór í samtali við mbl.is en engu að síður verður hann ekki lengri, alltént ekki að þessu sinni hvað svo sem framtíðin ber í skauti sér.