- Auglýsing -
- Auglýsing -

Magdeburg leikur til úrslita eftir dramaleik – þrjú rauð spjöld

Gísli Þorgeir Kristjánsson í undanúrslitaleiknum í dag. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Magdeburg leikur til úrslita í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla á morgun eftir eins marks sigur í dramatískum leik við Evrópumeistara síðasta árs, Barcelona, 31:30, í Lanxess Arena í Köln síðdegis.

Tim Hornke skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu. Ljósmynd/EPA

Tim Hornke skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins. Barcelona-liðið var þá tveimur mönnum færri eftir að leikmenn liðsins höfðu fengið rauða spjaldið með skömmu millibili þegar hálf önnur mínúta var til leiksloka. Barcelonamenn sáu þriðja rauða spjaldið þegar í fyrri hálfleik.

Úrslitaleikurinn á morgun verður þýskur því andstæðingur Magdeburg verður Füchse Berlin sem varð þýskur meistari í fyrsta sinn fyrir viku.

Gísli Þorgeir gerði að vanda mikinn usla. Ljósmynd/EPA

Eins og kom fram á handbolti.is þá var Gísli Þorgeir Kristjánsson í liði Magdeburg í dag eftir tveggja vikna fjarveru sökum höggs á vinstri öxlina í kappleik fyrir tveimur vikum. Skemmst er frá því að segja að Gísli Þorgeir lék svo að segja allar sóknir Magdeburg í dag.

Petrus fékk rautt í fyrri

Barcelona var lengst af sterkara liðið í fyrri hálfleik og voru með eins til fjögurra marka forskot. Spánarmeistararnir urðu fyrir fyrsta áfallinu á 27. mínútu þegar varnartröllinu Thiagus Petrus var sýnt rautt spjald fyrir að slá Gísla Þorgeir Kristjánsson í andlitið. Petrus hafið reynst Gísla Þorgeiri óþægur ljár í þúfu. Leikmenn Magdeburg nýttu sér fjarveru Petrus til að jafna metin fyrir hálfleik, 18:18.

Luis Frade stöðvar Ómar Inga. Ómar skoraði 11 mörk í leiknum, sjö úr vítaköstum. Ljósmynd/EPA

Ómar kom Magdeburg yfir

Barcelona var áfram sterkara í síðari hálfleik. Magdeburg lenti þremur mörkum undir, 24:21, eftir að hafa jafnað, 21:21. Ómar Ingi Magnússon kom Magdeburg í fyrsta sinn yfir, 25:24, með marki úr vítakasti um miðjan síðari hálfleik. Ekki tókst Magdeburg að fylgja þessu eftir.

Dika Mem borinn meiddur af leikvelli. Ljósmynd/EPA

Dika Mem úr leik

Dika Mem meiddist á hné um miðjan síðari hálfleik og kom ekkert meira við sögu. Þótt Barcelona eigi marga góða leikmenn þá er bara einn Dika Mem.

Barcelona komst yfir á ný, 27:26, og aftur 29:27, þegar níu mínútur voru til leiksloka. Þá eftir að hafa skorað tvö mörk í röð í autt mark Magdeburg sem hafði kallað markvörð sinn af leikvelli.

Af harðfylgi jafnaði Magdeburg metin, 29:29. Eftir það voru síðustu mínúturnar sannkallaður naglbítur.

Leikmenn Magdeburg fagna sigrinum og sæti í úrslitum. Ljósmynd/EPA

Tvö rauð með skömmu millibili

Þegar hálf önnur mínúta var til leiksloka liðu 15 sekúndur á milli tveggja rauðra spjalda sem leikmenn Barcelona fengu dæmd á sig. Dómararnir Slave Nikolov og Gjorgji Nachevski frá Norður Makedóníu fóru í bæði skiptin í skjáinn til að vera vissir í sinni sök. Fyrst fór Jonathan Carlsbogard og síðan Aitor Ariño Bengoechea. Fimm á móti sjö á lokakaflanum og án Petrusar og Mem í ofan á lag þá varð eitthvað að láta undan hjá Barcelona.
Vafalaust mun Barcelona skella skuldinni á dómarana enda voru öll rauðu spjöldin frekar ströng að mati þess sem þetta ritar.


Mörk Barcelona: Dika Mem 8, Timothey N’guessan 5, Melvyn Richardson 5, Aitor Ariño Bengoechea 3, Domen Makuc 3, Jonathan Carlsbogard 2, Aleix Gómez Abelló 2, Luis Frade 2.
Varin skot: Emil Nielsen 12, 29,2% – Vincent Gérard 0.

Mörk Magdeburg: Ómar Ingi Magússon 11, Tim Hornke 7, Albin Lagergren 4, Felix Claar 3, Lukas Mertens 2, Magnus Saugstrup 2, Gísli Þorgeir Kristjánsson 1, Oscar Bergendhal 1.
Varin skot: Nikola Portner 8, 29,6% – Sergey Hernandez 1, 8,3%.

Handbolti.is var í Lanxess Arena í Köln og fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -