Leikmenn Magdeburg halda áfram í vonina um að krækja í þýska meistaratitilinn á endasprettinum. Þeir lögðu Flensburg á heimavelli í kvöld án Gísla Þorgeirs Kristjánssonar og fleiri leikmanna sem eru á sjúkralista, 35:27, og komust þar með í efsta sætið, alltént næsta sólarhringinn. Füchse Berlin leikur annað kvöld við Gummersbach. Lokaumferð þýsku 1. deildarinnar fer fram á sunnudaginn. Allir leikir umferðarinnar hefjast klukkan 13.
Skemmst er frá því að segja að Magdeburg-liðið var mikið betra í leiknum við Flensburg í kvöld. Liðið var með yfirhöndina frá byrjun til enda og hafði m.a. fimm marka forskot í hálfleik, 17:12. Uppselt var að vanda í GETEC Arena í Magdeburg, alls 6.600 áhorfendur greiddu aðgang.
Tækifærið var um leið nýtt til þess að kveðja þrjá leikmenn Magdeburg sem róa á önnur mið í sumar; Michael Damgaard, Antonio Serradilla og Isak Persson.
Ómar skoraði fjögur mörk
Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar. Eitt marka sinna skoraði Ómar Ingi frá vítalínunni. Philipp Weber var markahæstur með sjö mörk.
Daninn Emil Jakobsen var markahæstur hjá Flensburg með átta mörk.
Magdeburg sækir Bietigheim á sunnudaginn og Füchse Berlin fer til Mannheim og leikur gegn Rhein-Neckar Löwen. Áður tekur Füchse Berlin á móti Gummersbach í Max Schmeling-Halle í Berlin annað kvöld.
Vonirnar runnu út í sandinn – Leipzig tapaði illa á heimavelli
Staðan í þýsku 1. deildinni: