Andrea Jacobsen landsliðskona í handknattleik hefur ekki leikið með þýska liðinu Blomberg-Lippe í rúmlega mánuð vegna meiðsla í ökkla. Í fyrstu var talið að meiðslin væru ekki alvarleg og Andrea yrði frá keppni í skamman tíma. Annað kom á daginn.
„Í myndatöku kom fram að liðband var slitið auk smá beinmars. Þar af leiðandi hefur þetta allt saman tekið lengri tíma en áætlað var í fyrstu,“ segir Andrea við handbolta.is í dag. Fjórar vikur eru liðnar í dag síðan Andrea meiddist á æfingu.
Leit út fyrir að vera saklaust
„Í fyrstu virtust meiðslin ekki vera alvarleg en síðan kom þetta í ljós í myndatökunni. Mér er sagt að batinn taki yfirleitt fjórar til sex vikur,“ segir Andrea og bætir við að enn er óvíst hvenær hún mæti út á völlinn á nýjan leik. Eitt er þó víst að í það styttist um leið og Andrea fær þann tíma sem þurfti til að ná góðum bata. „Það þarf að vera skynsemi í þessu,“ segir Andrea.
Talsvert hefur verið um meiðsli í herbúðum Blomberg-Lippe á sama tíma og mikið álag hefur verið á þeim leikmönnum sem til reiðu eru. M.a. ristarbrotnaði Díana Dögg Magnúsdóttir landsliðskona fyrir hálfri annarri viku í leik liðsins í Ungverjalandi.
Gengur vel
Blomberg-Lippe er í fjórða sæti þýsku 1. deildarinnar auk þess að hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína í riðlakeppni 16-liða úrslita Evrópudeildarinnar.
„Þetta er erfitt þegar meiðslalistinn hjá okkur er langur hjá okkur og margir leikir, en það styttist í mig,“ segir landsliðskonan sem gekk til liðs við Blomberg-Lippe síðasta sumar eftir árs veru hjá Silkeborg-Voel í dönsku úrvalsdeildinni.