- Auglýsing -
Níunda umferð Meistaradeildar kvenna í handknattleik fór fram um helgina þar sem að meðal annars ungverska meistaraliðið Györ vann Budacnost frá Svartfjallalandi, 25 – 23 í Podgorica í leik umferðarinnar. CSM Búkaresti og Metz unnið bæði sína leiki og náðu þar með að tryggja sér toppsætin í riðlunum nú þegar að gert verður hlé í keppni í deildinni yfir hátíðarnar.
Staðan í riðlunum tveimur er neðst í greininni.
Úrslit helgarinnar
A-riðill:
FTC 43 – 19 Banik Most (20 – 11).
- FTC vantaði aðeins tvö mörk uppá til þess að vinna sinn stærsta sigur Meistaradeildinni en metsigur liðsins er frá janúar 1997 þegar FTC vann Anagennisi Artas, 42 – 16.
- Eftir brösuga byrjun náði ungverska liðið 12 – 3 kafla frá sjöttu til tuttugustu og þriðju mínútu.
- Katrin Klujber, hægri skytta FTC skoraði 10 mörk í leiknum. Hún hefur skorað 66 mörk í Meistaradeildinni á keppnistímabilinu.
- Þetta var níundi tapleikur Banik Most í riðlinum og jafnframt sá tólfti í röð hjá liðinu í Meistaradeildinni. Liðið nálgast óðum met sem Krim setti í Meistaradeildinni frá nóvember 2014 þangað til í október 2016 þegar liðið tapaði 16 leikjum í röð.
Brest 22 – 24 Krim (12 – 10)
- Þetta var þriðji sigurleikur Krim í 21 útileik í Meistaradeild kvenna.
- Jovanka Radicevic og Daria Dmitrieva skoruðu samtals 12 mörk fyrir Krim í leiknum.
- Brest hefur nú tapað þremur heimaleikjum af fimm í Meistaradeildinni á leiktíðinni. Það er einum leik meira en allt síðasta tímabil.
- Jovana Risovic kom í mark Krim í seinni hálfleik. Hún átti heldur betur eftir að láta að sér kveða og varði 10 skot, 47,6% markvarsla.
- Enn og aftur var sóknarleikurinn Brest að falli. Liðið skoraði 10 mörk í seinni hálfleik og sóknarnýtingin var aðeins 41%.
CSM Búkaresti 27 – 24 Vipers (15 – 16)
- 8 – 2 kafli hjá CSM á milli 37. og 53. mínútu var lykillinn að sigri rúmenska liðsins í leiknum.
- Eftir að hafa ekki náð að verja eitt einasta skot í fyrri hálfleik beit Marie Davidsen markvörður CSM í skjaldarrendur í síðari hálfleik og varði 12 skot.
- Cristina Neagu skoraði 9 mörk í leiknum fyrir CSM. Hún hefur skorað 66 mörk í Meistaradeildinni í vetur. Neagu vantar einnig aðeins 24 mörk til þess að rjúfa 1.000 marka múrinn.
- Rúmenska liðið hefur nú unnið sjö af níu leikjum sínum í Meistaradeildinni en það er besta byrjun liðsins í sögunni.
Bietigheim 24 – 27 Odense (16 – 13)
- Heimakonur luku fyrri hálfleiknum með 5 – 1 kafla og margt benti til þess að það myndi duga til sigurs í leiknum.
- Danska liðið neitaði hins vegar að gefast upp og náði 6 – 2 kafla í seinni hálfleik þar sem varnarleikur liðsins var mjög öflugur.
- Melinda Szikora var öflug í markinu hjá Bietigheim í fyrri hálfleik. Hún varði 11 skot en náði sér ekki á strik í þeim síðari.
- Lois Abbingh vinstri skytta Odense mætti til leiks á ný eftir barnsburð. Hún ól barn í september.
- Þetta var fimmti sigurinn í röð hjá danska meistaraliðinu og hefur liðið ekki unnið fleiri leiki í röð í keppninni.
- Eftir að hafa leikið sex sinnum án taps í upphafi keppninnar hefur þýska liðið nú tapað þremur leikjum í röð.
B-riðill:
Esbjerg 39 – 31 Kastamonu (23 – 17)
- Esbjerg byrjaði leikinn af miklum krafti og var 5 – 0 yfir eftir sjö mínútur.
- Leikmenn tyrkneska liðsins gerðu sig seka um mörg mistök sem danska liðið nýtti sér til að ná 10 marka forystu eftir átján mínútur.
- Allir leikmenn Esbjerg fengu að spreyta sig í þessum leik.
- Mouna Chebbha var markahæst í liði Kastamonu með 12 mörk.
- Allir tólf útileikmenn danska liðsins náðu að skora en Kaja Kamp Nielsen var þeirra markahæst með sex mörk.
Storhamar 29 – 36 Rapid Búkaresti (15 – 17)
- Leikurinn var jafn allt fram á 45. mínútu þó að gestirnir frá Rúmeníu væru heldur með frumkvæðið
- Ivana Kapitanovic fór á kostum í markinu hjá Rapid. Hún varði sex skot á fyrstu þrettán mínútum leiksins.
- Sorina Maria Grozav skoraði þrjú mikilvæg mörk fyrir Rapid um miðjan seinni hálfleikinn sem kom liðinu í fimm marka forystu, 27 – 22.
- Maja Jakobsen var enn á ný markahæst hjá Storhamar með níu mörk.
Buducnost 23 – 25 Györ (12 – 14)
- Eftir að Györ byrjaði betur náðu leikmenn Buducnost að bíta frá sér og jafna metin, 5 – 5 á þrettándu mínútu.
- Armelle Attingré átti góðan leik í marki Buducnost og var með 36% markvörslu.
- Ungverska liðið nýtt sér mistök Buducnost undir lok fyrri hálfleiks og fór með tveggja marka forystu inní hálfleikinn.
- Györ náði fjögurra marka forskoti, 20 – 16. Leikmenn Buducnost neituðu að gefast upp og náðu að minnka muninn niður í eitt mark, 22 – 21 þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum.
- Liðin höfðu áþekka sóknarnýtingu í leiknum. Buducnost var með 49% en Györ 44%.
- Stine Bredal Oftedal var markahæst í liði Györ með sex mörk.
Lokomotiva 18 – 27 Metz (6 – 13)
- Eftir rólega byrjun þá náðu Metz sex marka forystu þökk sé góðum varnarleik sem leiddi til auðveldra marka úr hraðaupphlaupum.
- Lokomotiva átti í erfiðleikum með sóknarleik sinn í fyrri hálfleik og var aðeins með 22% sóknarnýtingu.
- Ana Malec var markahæst hjá Lokomotiva með fimm mörk.
- Debbie Bont og Sarah Bouktit voru báðar með 100% skotnýtingu hjá Metz með 5 mörk.
Staðan í A- og B-riðlum:
CSM Bukaresti | 9 | 7 | 1 | 1 | 281 – 246 | 15 |
Vipers Kristiansand | 9 | 6 | 1 | 2 | 289 – 231 | 13 |
Odense Håndbold | 9 | 6 | 0 | 3 | 256 – 228 | 12 |
Bietigheim | 9 | 4 | 2 | 3 | 277 – 239 | 10 |
FTC | 9 | 4 | 1 | 4 | 267 – 249 | 9 |
Brest Bretagne | 9 | 3 | 1 | 5 | 224 – 236 | 7 |
Krim Ljubljana | 9 | 3 | 0 | 6 | 237 – 247 | 6 |
Banik Most | 9 | 0 | 0 | 9 | 216 – 371 | 0 |
Metz | 9 | 7 | 1 | 1 | 283 – 219 | 15 |
Team Esbjerg | 9 | 7 | 0 | 2 | 304 – 237 | 14 |
Györ | 9 | 7 | 0 | 2 | 282 – 221 | 14 |
Rapid Bukaresti | 9 | 6 | 2 | 1 | 283 – 260 | 14 |
Buducnost | 9 | 4 | 1 | 4 | 239 – 250 | 9 |
Storhamar | 9 | 2 | 0 | 7 | 238 – 257 | 4 |
Kastamonu | 9 | 1 | 0 | 8 | 238 – 316 | 2 |
Lokomotiv Zagreb | 9 | 0 | 0 | 9 | 172 – 279 | 0 |
- Auglýsing -