Sjötta umferð Meistaradeildar kvenna í handknattleik fer fram í dag og á morgun þar sem að meðal annars rúmensku liðin CSM Búkaresti og Rapid Búkaresti mæta norsku liðunum Vipers og Storhamar en rúmensku liðin eru enn taplaus í riðlakeppninni.
Leikur umferðarinnar hjá EHF fer fram í Ljubljana þegar að Krim tekur á móti franska liðinu Brest. Heimakonur í Krim vonast eftir því að ná sínum öðrum sigri á þessari leiktíð. Frammistaða franska liðsins hefur valdið miklum vonbrigðum fram til þessa.
Eftir leiki helgarinnar verður gert hlé á keppni í Meistaradeildinni fram til 3. desember vegna Evrópumóts landsliða sem hefst í Slóveníu, Svartfjallalandi og Norður Makedóníu fimmtudaginn 3. nóvember.
Leikir helgarinnar
A-riðill:
Banik Most – FTC | Laugardagur kl. 14 | Beint á EHFTV
- Banik Most hefur fengið á sig 200 mörk í fyrstu fimm leikjunum sem er met í Meistaradeild kvenna.
- Tékkneska liðið hefur tapað átta leikjum í röð í Meistaradeildinni.
- FTC eru ósigrað í tveimur leikjum í röð.
- Katrin Klujber hægri skytta ungverska liðsins er þriðja markahæst í Meistaradeildinni með 39 mörk.
- Banik Most hefur aðeins náð að vinna einn leik af síðustu ellefu í Meistaradeild kvenna.
Vipers – CSM Bukaresti | Laugardagur kl. 16 | Beint á EHFTV
- Eftir að hafa unnið 10 leiki í röð hefur Vipers nú ekki unnið tvo leiki í röð.
- CSM hefur er taplaust eftir fimm fyrstu leiki sína í Meistaradeildinni sem er besta byrjun liðsins í sögu keppninnar.
- Rúmenska liðið hefur unnið 11 leiki og gert 2 jafntefli á keppistímabilinu þegar litið er til allra móta sem liðið tekur þátt í um þessar mundir.
- Cristina Neagu er í áttunda sæti yfir markahæstu leikmenn í Meistaradeildinni á leiktíðinni með 30 mörk. Neagu vantar 60 mörk til þess að ná að rjúfa 1.000 marka múrinn.
- Þessi lið hafa mæst sex sinnum áður og hefur hvort þeirra unnið þrisvar sinnum.
Krim – Brest | Sunnudagur kl. 12 | Beint á EHFTV
- Krim hefur aðeins náð að sigra í einum leik af fyrstu fimm á leiktíðinni. Liðið hefur m.a. tapað báðum heimaleikjunum til þessa.
- Franska liðinu hefur gengið illa að skora til þessa og mörkin eru aðeins 123 í fimm leikjum. Aðeins Lokomotiva hefur skorað færri mörk, 103.
- Daria Dmitrieva og Jovanka Radicevic eru markahæstar hjá Krim með 29 mörk hvor.
- Þetta verður 290. leikur Krim í Meistaradeildinni. Aðeins eitt hefur tekið þátt í fleiri leikjum, Buducnost með 295 leiki.
- Krim hefur aldrei náð að vinna Brest en þetta er þriðji leikur þeirra.
Odense – Bietigheim | Sunnudagur kl. 13 | Beint á EHFTV
- Meiðslalistinn lengist enn hjá danska meistaraliðinu Odense. Um síðustu helgi sleit Noemi Hafra krossband.
- Fyrir voru fjórir leikmenn á meiðslalistanum, Lois Abbingh, Mia Rej, Dione Housheer og Larissa Nusser.
- Þýska liðið er ósigrað í 64 leikjum í öllum mótum.
- Bietigheim hefur skorað skorað flest mörkin í Meistaradeildinni. 176, og er með 72,7% skotnýtingu. Odense er hins vegar í níunda sæti með 143 mörk.
- Melinda Szikora markvörður þýska liðsins hefur verið í góðum gír þar sem af er tímabilsins. Hún hefur varið að meðaltali 35% af skotunum sem hún hefur fengið á sig.
B-riðill:
Györ – Buducnost | Laugardagur kl. 16 | Beint á EHFTV
- Ungverska liðið hefur unnið tvo leiki í röð eftir tap í þriðju umferð fyrir Metz.
- Liðin þekkjast býsna vel en frá árinu 2006 hafa þau mæst 25 sinnum. Ungverska liðið hefur unnið 18 sinnum, svartfellska liðið þrjá leiki og fjórum sinnum hefur orðið jafntefli.
- Milena Raicevic fyrirliði Buducnost er markahæst í Meistaradeildinni með 47 mörk.
- Ana Gros er markahæst hjá Györ með 21 mark.
- Ungverska liðið er með bestu sóknina og vörnina í riðlinum. Liðið hefur skorað 166 mörk en fengið á sig 119. Buducnost er hins vegar í fimmta sæti með markatöluna 146 – 145.
Metz – Lokomotiva Zagreb | Laugardagur kl. 16 | Beint á EHFTV
- Liðin hafa aldrei mæst áður
- Franska liðið tekur á móti eina liðinu sem hefur ekki enn unnið leik í Meistaradeildinni.
- Króatíska liðið er með yngsta leikmannahópinn í Meistaradeildinni en liðið hefur ekki enn fengið stig í riðlakeppninni. Eina stigið sem félagið hefur fengið í sögu sinni í Meistaradeildarinnar kom í jafntefli við Sävehof fyrir átta árum síðan.
- Bruna de Paula er markahæst í liði Metz með 26 mörk en þær Klara Birtic og Stela Posavec eru markahæstar hjá Lokomotiva með 17 mörk hvor.
- Metz er með 62% sóknarnýtingu það sem af er tímabilsins á meðan Lokomotiva er með 50,7% nýtingu.
Rapid Bukaresti – Storhamar | Sunnudagur kl. 12 | Beint á EHFTV
- Bæði lið eru nýliðar í Meistaradeild kvenna. Um leið er þetta í fyrsta sinn sem þau mætast.
- Rapid er eina taplausa liðið í riðlinum; hefur unnið þrjá leiki og gert tvö jafntefli.
- Storhamar hefur átt misjöfnu gengi að fagna það sem af er riðlakeppninnar; unnið tvo leiki og tapað þremur og er í sjötta sæti riðilsins.
- Maja Jakobsen er leikreyndasti leikmaður Stohamar. Hún er einnig markahæst með 32 mörk. Hjá Rapid er Eliza Iulia Buceschi markahæst með 22 mörk.
Kastamonu – Esbjerg | Sunnudagur kl. 12 | Beint á EHFTV
- Liðin mætast í fyrsta sinn í sögunni.
- Kastamonu batt enda á 17 leikja taphrinu sína um síðustu helgi með sigri á Lokomotiva 26 – 23.
- Tyrkneska liðið hefur fengið flest mörk á sig í riðlakeppninni, 171.
- Bæði lið eiga leikmenn á meðal fjögurra markahæstu í keppninni. Carlos Azenaide er næst markahæst með 43 mörk fyrir Kastamonu. Henny Ella Reistad er í fjórða sæti með 37 mörk fyrir Esbjerg.
Staðan í A-riðli:
Bietigheim | 5 | 4 | 1 | 0 | 176 – 124 | 9 |
CSM Bukaresti | 5 | 4 | 1 | 0 | 162 – 134 | 9 |
Vipers | 5 | 3 | 1 | 1 | 148 – 130 | 7 |
FTC | 5 | 2 | 1 | 2 | 125 – 140 | 5 |
Odense | 5 | 2 | 0 | 3 | 143 – 135 | 4 |
Brest Bretagne | 5 | 2 | 0 | 3 | 123 – 135 | 4 |
Krim Ljubljana | 5 | 1 | 0 | 4 | 144 – 148 | 2 |
Banik Most | 5 | 0 | 0 | 5 | 125 – 200 | 0 |
Staðan í B-riðli:
Györ | 5 | 4 | 0 | 1 | 166 – 119 | 8 |
Rapid Bukaresti | 5 | 3 | 2 | 0 | 160 – 147 | 8 |
Metz | 5 | 3 | 1 | 1 | 155 – 141 | 7 |
Esbjerg | 5 | 3 | 0 | 2 | 159 – 141 | 6 |
Buducnost | 5 | 2 | 1 | 2 | 146 – 145 | 5 |
Storhamar | 5 | 2 | 0 | 3 | 136 – 143 | 4 |
Kastamonu | 5 | 1 | 0 | 4 | 133 – 171 | 2 |
Lok. Zagreb | 5 | 0 | 0 | 5 | 103 – 151 | 0 |