- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Mensah segir skilið við danska landsliðið

- Auglýsing -

Danski handknattleiksmaðurinn Mads Mensah hefur ákveðið að gefa ekki oftar kost á sér í danska landsliðið í handknattleik. Mensah, sem er 34 ára gamall, lék fyrst með landsliðinu fyrir 15 árum, hefur klæðst landsliðstreyjunni í 225 skipti og orðið fjórum sinnum heimsmeistari og einu sinni Evrópumeistari.

Einn af fimm frá HM 2019

Mensah var einn fimm leikmanna danska landsliðsins sem varð Evrópumeistari á sunnudaginn sem var í danska landsliðinu þegar þegar Danir unnu heimsmeistaratitilinn í fyrsta skipti fyrir sjö árum. Hinir eru Simon Hald, Rasmus Lauge, Magnus Landin og Johan Hansen.

Í 225 landsleikjum skoraði Mensah 341 mörk. Á síðari árum hefur hlutverk hans dregist saman jafnt og þétt. Hann er ellefti leikjahæsti landsliðsmaður Danmerkur. Hann vann ellefu sinnum til verðlauna með landsliðinu.

Flutti heim í sumar

Mensah lék árum saman með Flensburg í Þýskalandi en gekk til liðs við Skjern síðasta sumar og samdi til fjögurra ára.

„Ég var undrandi þegar Mensah tilkynnti mér að hann teldi vera rétt að hætta með landsliðinu. Ég er ekki honum sammála en virði ákvörðunina,“ segir Nikolaj Jacobsen landsliðsþjálfari við TV2 í morgun.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -